Orkuveitan og dótturfélög
Orkuveitan er móðurfélag Veitna, Orku náttúrunnar, Ljósleiðarans og Carbfix. Við styðjum vaxandi samfélag, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu. Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.
Í framtíðarsýn og stefnu Orkuveitunnar er lögð áhersla á sjálfbærni, nýsköpun, samstarf og framtíðarhugsun með hag viðskiptavina og samfélagsins að leiðarljósi.
Með því að nýta orku náttúrunnar, skapandi orku mannlífsins og frumkvöðlaorku starfseminnar skipar Orkuveitan sér í fremstu röð við að knýja áfram samfélög með sjálfbærum hætti. Við njótum öll ávinningsins.
Framtíðarsýn
Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.
Hlutverk
Orkuveitan styður vaxandi samfélag, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu.
Stefnuáherslur

Stefnuáherslur
Aukið framboð og sjálfbærar lausnir
Nýtum orkuna úr náttúrunni
- Aukin orkuframleiðsla
- Ábyrg auðlindanýting
- Öflug veitukerfi
- Kolefnishlutleysi
Nýsköpun og öflugt samstarf
Tengjumst skapandi orku úr mannlífinu
- Virðisaukandi lausnir
- Kvik og hröð innleiðing
- Árangursríkt samstarf
Árangursmiðuð liðsheild og ábyrgur rekstur
Mögnum okkar eigin frumkvöðlaorku
- Fjölbreytt liðsheild
- Skilvirk og snjöll
- Traustur rekstur
- Framsýn forysta
Fyrir viðskiptavininn
Veitum orkunni til viðskiptavina
- Ánægðir viðskiptavinir
- Snjöll og örugg þjónusta
- Fjölbreytt viðskipti
Gildin okkar
- Frumkvæði endurspeglar skuldbindingu okkar til að knýja fram jákvæðar breytingar.
- Framsýni snýr einkum að hlutverki Orkuveitunnar þar sem veiturekstur er í eðli sínu viðfangsefni til afar langs tíma og þarfir íbúanna fyrir þjónustu veitufyrirtækja úreldast ekki.
- Hagsýni er boðorð hagkvæms reksturs frá degi til dags þannig að viðskiptavinir fái skilgreinda þjónustu á sanngjörnu verði.
- Heiðarleiki snýr að því hvernig starfsfólk kemur fram við viðskiptavini og hvert við annað, hvernig það starfar og tryggir gegnsæi í rekstrinum.