Vatnsból
Aðgangur að hreinu neysluvatni er ein verðmætasta auðlind fyrir íbúa og atvinnulíf. Það er einstakt á heimsvísu að höfuðborgarsvæði hafi aðgang að hreinu drykkjarvatni sem lítið eða ekkert þarf að meðhöndla.
Flest lítum við á hreint neysluvatn sem sjálfsagðan þátt í daglegu lífi. Skortur á aðgengi að hreinu vatni getur haft alvarlegar afleiðingar og það er því óviðunandi að öryggi drykkjarvatns sé ógnað.
Í magni talið er það kalda vatn sem viðskiptavinir Orkuveitunnar fá afhent einungis þriðjungur af magni heita vatnsins. Það segir þó ekki alla söguna um mikilvægið því heilnæmt neysluvatn er undirstaða lífs og forsenda margvíslegs iðnaðar. Heilnæmi vatnsins þarf að verja allt frá upptökum að kranastútum almennings og annarra kaupenda. Helstu hætturnar á þeirri leið eru við vatnsbólin sjálf.
Sjálfbær nýting vatnsbóla felur í sér að komandi kynslóðir búi við sömu tækifæri og núlifandi kynslóðir til að nýta þau og að unnt sé að staðfesta að þannig sé að verki staðið. Vegna þeirrar ábyrgðar sem fyrirtækinu er falin mun Orkuveitan standa vörð um vatnsbólin fyrir hættum og ágengni, en rekstur vatnsveitna er í höndum Veitna, dótturfélags Orkuveitunnar.
Elstu vatnsból Orkuveitunnar eru Gvendarbrunnar í Heiðmörk. Þaðan var vatni fyrst veitt til bæjarins árið 1909 og enn þjóna Gvendarbrunnar borgarbúum. Nú fær nær allt höfuðborgarsvæðið fær drykkjarvatn sitt úr vatnsbólum í Heiðmörk.
Opin vatnsból eru hverfandi í starfsemi Orkuveitunnar en borholur eru á afgirtum svæðum þar sem jafnvel er mikil umferð fólks skammt utan girðinga. Það á meðal annars við um vatnsból höfuðborgarsvæðisins í Heiðmörk.
Vatnsvernd
Á höfuðborgarsvæðinu eru vatnsbólin okkar í Heiðmörk. Vatnsverndarsvæðið í Heiðmörk er mjög umfangsmikið eða um 250 ferkílómetrar. Það er mikilvægt að allt fólk sem á leið um vatnsverndarsvæði skilji mikilvægi þess að ganga vel um og láti strax vita ef það verður vart við eitthvað sem það heldur að geti mengað vatnið. Helsta hættan er að svæðin mengist, t.d. með rusli, olíu, skólpi eða öðrum efnum því þessi efni geta komist í gegnum jarðlögin og í vatnið sem rennur neðanjarðar inn í vatnsbólin.
Vatnsvinnsla úr vatnsbólum Veitna og Orku náttúrunnar er ein af undirstöðum reksturs Orkuveitunnar og lífsgæða þess samfélags sem fyrirtækið þjónar. Vatnsból Veitna eru fimmtán og er vatnið notað á höfuðborgarsvæðinu og á Vestur- og Suðurlandi. Dreifikerfi vatnsveitnanna þjóna alls um 45% þjóðarinnar, sjá um vatnsveituna á vef Veitna. Vatnsból Orku náttúrunnar eru þrjú og nýtt í jarðvarmavirkjunum fyrirtækisins.
Vatnsvernd í Heiðmörk
Nú stendur yfir vinna við deiliskipulag Heiðmerkur. Orkuveitan leggur áherslu á öfluga vatnsvernd og að nýtt deiliskipulag endurspegli þá framsýni sem vatnsverndarskipulagið ber með sér. Deiliskipulagið þarf að fela í sér minni umferð véla og bíla um landareignir Orkuveitunnar í Heiðmörk en nú er og aukna stýringu allrar umferðar. Vatnið gengur fyrir og við, sem samfélag, gætum þurft að f inna sumum þeim þörfum, sem við höfum sinnt í Heiðmörk, útrás annarsstaðar. Orkuveitan er fús til þátttöku í að finna farveg lausna í þeim efnum.