Öryggi

Loading...

Markmið Orkuveitunnar er að efla öryggis- og heilbrigðisvitund hjá starfsfólki samstæðunnar.

Mannauðs-, öryggis- og heilsustefna Orkuveitunnar

Áherslur

  • Leiðandi í að skapa slysalausan vinnustað og vera til fyrirmyndar í öryggis- og heilsumálum
  • Umsjón með þróun öryggis- og heilsumála og leiða umbótaverkefni og fræðslu á því sviði
  • Þátttaka í gerð áhættumats, verkefna og ferla
  • Umsjón með öryggis- og heilsunefndum samstæðunnar
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur/starfsfólk
  • Eftirlit með innri og ytri þjónustu og rekstri í öryggis- og heilsumálum

Öryggiskröfur

Í rekstri okkar er gert ráð fyrir að öllum kröfum, lögum og reglum sé fylgt og að sífellt sé unnið að endurbótum sem stuðla að auknu öryggi starfsfólks, samstarfsaðila og viðskiptavina.

Öryggiskröfur til verktaka eru settar fram í útboðsgögnum.

Áhættumat

Orkuveitan gerir kröfur um að verktakar skili inn áhættumati. Hér fyrir neðan er að finna slóð á skjal til að fylla út áhættumat og leiðbeiningar við gerð þess. Verktökum er ekki skylt að nota þessa útgáfu af áhættumati en hún gæti auðveldað vinnuna.

Áhættumat - gagnabanki - október 2025

Risk Assessment - database - október 2025

Vandamál að opna gagnabankann? / Problems opening the database?

Áhættumat - gagnabanki leiðbeiningar

Aðstoð við verktaka

Sniðmát fyrir öryggis- og heilbrigðisáætlun

Gullnu reglurnar

Sniðmát fyrir atvikaskráningu

Sniðmát fyrir viðbragðsáætlun við neyðarstjórnun

Sniðmát fyrir ÖH morgunfundi

Neyðarstjórn

Neyðarskipulag hjá Orkuveitunni þjónar þeim tilgangi að búa fyrirtækið og dótturfyrirtækin undir að takast á við neyðartilvik með skipulegum og markvissum hætti til að:

  • koma í veg fyrir manntjón
  • lágmarka tjón á mannvirkjum á veitusvæði fyrirtækisins
  • lágmarka neikvæð umhverfisáhrif
  • tryggja sem best orkuafhendingu í langvarandi neyðartilviki
  • tryggja afhendingu á öruggu og heilnæmu vatni

Neyðarskipulagið tekur til alls fyrirtækisins, allrar starfsemi þess og alls starfsfólks. Það lýsir ábyrgðar-, vald- og verkaskiptingu, boðleiðum, viðbrögðum og aðstoð í neyðartilviki.

Forstjóri Orkuveitunnar er formaður Neyðarstjórnar.