Jafnréttistímalínan

Frá stofnun Orkuveitunnar hafa jafnréttismál verið höfð í fyrirrúmi og í kjölfarið var glæsilegum árangri náð. Orkuveitan hefur um árabil verið leiðandi fyrirtæki í jafnréttismálum en við erum hvergi nærri hætt því ávallt má gera betur. Á Jafnréttistímalínunni má sjá jafnréttissögu Orkuveitunnar, þau skref sem voru tekin og þeim árangri sem var náð. Öll sem komu að verkefninu eru sammála um að jafnrétti sé ákvörðun og takist ekki án markmiðasetningar, aðgerða og með fullri þátttöku stjórnenda.

Loading...

2027

Loading...
Full laun í sex mánuði í fæðingarorlofi

Frá 1. janúar 2027 tryggir Orkuveitan starfsfólki sínu full laun í allt að sex mánuði í fæðingarorlofi, með skilgreindu þaki, ofan á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

2026

Loading...
Orkuveitan brúar bilið í fæðingarorlofi

Árið 2026 tók Orkuveitan skref áfram í jafnrétti og stuðningi við nútímafjölskyldur. Barnshafandi starfsfólki er boðið launað leyfi allt að einum mánuði fyrir settan dag og fá aukatíma á velferðartorginu hjá Kara Connect í vöggugjöf. Þá geta foreldrar unnið 80% starf á fullum launum í allt að þrjá mánuði á fyrstu tveimur árum barnsins.

Loading...
Fjölnotarými með leikaðstöðu

Í upphafi árs 2026 opnaði Orkuveitan fjölnotarými á 6. hæð, Bæjarhálsi 1. Þar er bæði vinnu- og leikaðstaða þegar aðstæður kalla á að börn komi með í vinnuna en rýmið er opið öllu starfsfólki.

Loading...
Alþjóðlegur dagur kvenna, kvára og stelpna í vísindum

11. febrúar 2026 stóðu Orkuveitan, STEM Ísland, Elliðaárstöð og Carbfix fyrir opnum viðburði í tilefni alþjóðlegs dags kvenna, kvára og stelpna í vísindum. Á viðburðinum var fjallað um stöðu og sýnileika kvenna í vísindum ásamt hlutverki og aðgengi að mótun framtíðar vísinda og tækni á Íslandi.

2025

Loading...
Stelpur, stálp og tækni

Þann 23. maí 2025 fór fram viðburðurinn Stelpur, stálp og tækni sem hluti af alþjóðlega verkefninu Girls in ICT. Í Elliðaárstöð fengu stelpur og stálp í 9. bekk fræðslu og gerðu tilraunir og þrautir. Konur og kvár frá Veitum deildu sögu sinni og hvernig þau náðu árangri. Viðburðurinn hefur verið haldinn árlega frá 2021.

Loading...
Strákar og stálp í háskóla

Þann 5. júní 2025 tók Orkuveitan og dótturfélög þátt í viðburðinum Strákar og stálp í háskóla þar sem tekið var á móti strákum og stálpum úr 9. bekk í Háskólanum í Reykjavík. Markmiðið var að kynna tækifæri í námi og atvinnulífinu og ýta undir fjölgun stráka og stálpa í háskólanámi.

Loading...
Tvítyngd

Á stefnudegi Orkuveitunnar 26. ágúst 2025 voru skammtímamarkmið um traustan rekstur og öruggt umhverfi kynnt en lykilárangur þar undir var að 100% af kjarnaupplýsingum skyldu vera aðgengilegar á bæði íslensku og ensku.

Loading...
Laus skrifborð og enginn virðingarstigi

Í kjölfar endurbóta á Bæjarhálsi 1 var ákveðið að hæðir húsnæðisins skyldu ei lengur vera birtingarmynd virðingarstiga innan Orkuveitunnar. Ákveðið var að vinnustaðurinn yrði opið rými með engum föstum skrifborðum né sætum. Öll geta setið og unnið þar sem laust er.

Loading...
Jafnvægisvogin

Orkuveitan, Veitur og Carbfix hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2025 og 2024 en Orkuveitan og dótturfélögin höfðu hlotið viðurkenninguna árin áður.

Vesturhús Orkuveitunnar

Loading...
Fyrir breytingar

Tíu árum eftir að myglu varð vart í húsnæði Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 var endurbótum lokið og starfsemin flutti inn í húsnæðið í desember 2025. Húsið var tekið í gegn með það að markmiði að skapa heilnæman og góðan vinnustað fyrir öll og voru jafnréttissjónarmið því ríkjandi í öllum ákvörðunum. Áður en umbætur hófust innanhúss var gerð þarfagreining og ólíkir aðilar spurðir hvað mætti bæta og hvað þyrfti að vera til staðar til að þeim liði vel í vinnunni.

Loading...
Eftir breytingar

Jafnréttissjónarmið og inngilding eru ráðandi í hönnun vinnustaðarins. Nýtt móttökuborð í Bæjarhálsi er hannað svo fólk í hjólastól geti komið þar að og starfað. Fyrir breytingarnar var aðalinngangurinn tunnuhurð með öðrum inngangi við hliðina en þar var þröskuldur. Eftir breytingar geta nú öll notað sama inngang í húsið. Sjónarmiðið er að aðgengi eigi að vera varanlegt og enga fyrirhöfn eigi að þurfa svo öll geti notað rýmið. Við viljum að öllum líði velkomin og vel í húsnæðinu.

2024

Loading...
Iðnir og tækni 2.0

Öllum nemendum í 10. bekk Árbæjarskóla er boðið í árlega heimsókn á jarðhitasýningu í Hellisheiðarvirkjun. Þar fræðast þau um orku og fjölmörg störf innan orkugeirans.

Loading...
Krafti kvenna fagnað

Opnunarviðburður Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) var haldinn 5. september hjá Carbfix. Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Edda Sif Pind Aradóttir framkvæmdastýra Carbfix og Unnur Elva Arnardóttir formaður FKA voru heiðursgestir og umræður voru teknar um jafnrétti, hugrekki og loftslagsaðgerðir.

Loading...
Carbfix Nýsköpunarfyrirtæki ársins – Nordic Women in Tech Awards

Þann 13. nóvember 2024 var Carbfix valið Nýsköpunarfyrirtæki ársins á Nordic Women in Tech Awards. Nýsköpun og jafnrétti eru grunnstoðir í starfsemi Carbfix en verðlaunin eru veitt þeim sem sýnt hafa framúrskarandi árangur í nýsköpun með það að markmiði að varpa ljósi á framúrskarandi konur í tækniheiminum og hvetja þannig fleiri konur til náms og starfa innan geirans.

Loading...
Jafnréttisfræðsla

Í byrjun árs 2024 sat starfsfólk Veitna viðamikið fræðslunámskeið um jafnrétti og fjölbreytileika hjá Sóleyju Tómasardóttur kynjafræðingi. Lögð var áhersla á að jafnréttismál séu forsenda árangurs og ákvarðanir verði að vera teknar af sem fjölbreyttustum hópi. Fræðsla er þó ekki nóg og nauðsynlegt er að starfsfólk haldi samtali og vinnunni áfram eftir að fræðslu er lokið.

Loading...
Ný stefna og framtíðarsýn

Eftir að Sævar Freyr Þráinsson tók við sem forstjóri 2023 var lögð rík áhersla á háleita markmiðasetningu í jafnréttismálum. Í febrúar 2024 var kynnt ný stefna Orkuveitunnar en eitt af langtímamarkmiðum fyrirtækisins er að verða forystuafl fjölbreytileika og jafnréttis. Fjölbreytt liðsheild og inngilding eru lykilatriði til að ná árangri.

2023

Loading...
Menntasproti atvinnulífsins

Árið 2023 voru Vaxtasprotum Orkuveitunnar veitt verðlaunin Menntasproti atvinnulífsins. Markmið verkefnisins var að stuðla að aukinni hæfni og breyttri menningu innan Orkuveitunnar til að takast á við síbreytilegt umhverfi og auknar kröfur nýrra tíma. Sérstök áhersla var lögð á að valdefla konur og stuðla að þeim sem framtíðarleiðtogum en 68% þátttakenda voru konur.

Loading...
Fjölbreyttari í sumarstörfum

Í samstarfi við Specialisterne á Íslandi og Menntaskólann í Kópavogi voru sex einhverfum einstaklingum boðin sumarstörf hjá Orkuveitunni sumurin 2023–2025.

Loading...
Karitas velferðartorg

Karitas er velferðartorg Orkuveitunnar en þar getur starfsfólk nýtt sér ýmsa þjónustu allt að þrisvar á ári. Hægt er að bóka sálfræðiaðstoð, félagsráðgjöf, einkaþjálfun, næringarráðgjöf, nudd og margt fleira.

Loading...
Universal Fair Pay Leader

Árið 2023 hlaut Orkuveitan viðurkenningu frá FPI fair pay innovation Lab GGMBH.

Loading...
Rise and lead

Árið 2023 vann Orkuveitan Rise and Lead-verðlaunin fyrir að loka kynbundnum launamun og glæsilegan árangur í jafnréttismálum.

Loading...
Veitur með hæstu einkunn í skýrslu KÍÓ

Í skýrslu KÍÓ, félags kvenna í orkumálum, árið 2023 um stöðu kvenna innan íslenska orkugeirans voru Veitur með hæstu einkunn fyrirtækjanna sem tekin voru fyrir. Heildarákvörðunarvald kvenna á markaði hafði þó lækkað úr 36% í 32%. Orkuveitan hefur átt fulltrúa í stjórn KÍÓ frá stofnun samtakanna.

2022

Loading...
Auglýst eftir forstýru og fræðsluerindi um jafnrétti

Frá árinu 2022 var aukin áhersla á fjölbreytileika og inngildinu. Í kjölfarið var orðalag skoðað og auglýst eftir forstýru frekar en forstjóra og fundaröðin Jafnrétti á þriðjudögum hófst. Á fundarröðunum komu fjölmargir einstaklingar og samtök með fræðsluerindi líkt og Veiga Grétarsdóttir, Þorsteinn í karlmennskunni, Spesielisterne og Samtökin´78.

2021

Loading...
Universal Fair Pay Leader

Orkuveitan hlaut viðurkenningu frá FPI fair pay innovation Lab GGMBH 2021

2020

Loading...
Sveigjanleiki og fjarvinna

Eftir að heimsfaraldur gekk yfir var tilhugsunin um fjarvinnu ekki lengur svo fjarlæg. Vinnustaðurinn neyddist til að aðlagast hratt og eftir tímabilið þótti fjarvinna og aukinn sveigjanleiki sjálfsagt mál sem gerði fólki auðveldara að samræma vinnu og einkalíf.

Loading...
Kynjuð starfsheiti

Í áframhaldandi vinnu við jafnréttismál Orkuveitunnar var kynja- og fjölbreytileikafræðingurinn Sóley Tómasdóttir fengin til að gera greiningu á starfsheitum fyrirtækisins. Í ljós kom að samhæfingu vantaði á starfsheiti en að þau voru í miklum meirihluta karllæg. Tillögur að breytingum voru innleiddar og starfsfólki er nú frjálst að velja sína eigin starfstitla.

2018

Loading...
Vinnutími iðnaðarfólks styttur

Vinnutíma iðnaðarfólks var breytt úr 10 tímum í 8 tíma og hefst nú vinnudagurinn 8:20 og endar 16:15. Í kjölfar breytingarinnar bárust fleiri umsóknir frá yngra fjölskyldufólki í leit að fjölskylduvænni vinnutíma.

2017

Loading...
Kynbundnu launabili lokað

Óútskýrðum kynbundnum launamun var náð og hefur haldist innan við 1% síðan

Loading...
Starfsánægja eykst

Eftir að kynjahlutföll í stjórnendastöðum voru jöfnuð, kynbundnum launamuni lokað og vinnustaðurinn tekinn í gegn með jafnréttissjónarmið í huga jókst heildarstarfsánægja allra kynja.

2015

Loading...
Samstarf við PayAnalytics til að loka kynbundnum launamun

Árið 2015 hóf Orkuveitan samstarf við PayAnalytics við að þróa kerfi sem gerði fyrirtækinu kleift að útrýma kynbundnum launamun.

Loading...
Jafnréttissáttmáli Sameinuðu þjóðanna undirritaður

Bjarni Bjarnason, þáverandi forstjóri, undirritaði Jafnréttissáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir hönd Orkuveitunnar.

Loading...
Hvatningarverðlaun jafnréttismála

Orkuveitan hlaut Hvatningarverðlaun jafnréttismála en markmið verðlaunanna er að vekja athygli á fyrirtækjum sem hafa á markvissan hátt stuðlað að jafnrétti. Orkuveitan hafði staðið á bak við fjölda verkefna í jafnréttismálum og unnið markvisst að því að breyta vinnuumhverfi til hins betra.

Loading...
Fanga orku kvenna

Í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna stóð Orkuveitan fyrir Instagram-leik þar sem markmiðið var að fanga orku kvenna á mynd. Veitt voru verðlaun fyrir bestu, frumlegustu og vinsælustu myndina. Bestu myndina, sem sést hér til hliðar, vann Sigríður Eva Tryggvadóttir.

2014

Loading...
Iðnir og tækni

Iðnir og tækni var átaksverkefni í samstarfi við Árbæjarskóla sem hófst 2014 og stóð til 2024 en þá fékk það á sig nýja mynd. Nám og störf í iðngreinum voru kynnt fyrir nemendum í 9. og 10. bekk og þeim boðinn valáfangi hjá Orkuveitunni. Tilgangur verkefnisins var að hvetja nemendur til náms í iðngreinum og kynna fyrir þeim mögulegan starfsframa innan orkugeirans. Krafa var gerð um jafnt kynjahlutfall til að hvetja stelpur og stálp til þátttöku.

Loading...
Orkuveitan með kynjagleraugum

Árið 2014 gerði kynjafræðingurinn Kristín A. Hjálmarsdóttir úttekt á Orkuveitunni út frá sjónarmiðum jafnréttis og skilaði skýrslunni „Orkuveita Reykjavíkur með kynjagleraugum“. Ein helsta hindrun í jafnréttismálum var of jákvætt viðhorf gagnvart jafnrétti en það getur valdið blindu gagnvart raunverulegri stöðu. Allar úrbætur sem lagðar voru til voru skoðaðar og ýmis verkefni og úrbótum hrint í framkvæmd. Afraksturinn skilaði sér í frábærum árangri árin eftir.

Loading...
Orkuveitan hlýtur jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs

Árið 2014 hlaut Orkuveitan jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs.

2011

Loading...
Jafnrétti framkvæmt

Árið 2011 var tímamótaár í jafnréttismálum Orkuveitunnar. Skýr stefna frá Bjarna Bjarnasyni, nýjum forstjóra Orkuveitunnar, varð til þess að tekin voru ákveðnari skref í jafnréttismálum. Bjarni lagði áherslu á að „fremja jafnrétti“, kynjahlutföll á stjórnendastigum yrðu jöfnuð og óútskýrðum launamun skyldi eytt.

2010

Loading...
Kvennafrídagur

Á kvennafrídeginum 25. október 2010 hættu konur hjá Orkuveitunni störfum kl. 14:25 án launamissis. Forstjórinn leysti af á skiptiborðinu og karlar hlupu undir bagga þar sem þurfti.

2007

Loading...
Fyrsta konan verður stjórnarformaður

Bryndís Hlöðversdóttir var fyrsta konan til að verða stjórnarformaður Orkuveitunnar en hún var stjórnarformaður í þrjá mánuði í kringum áramótin 2007 og 2008. Stutt seta hennar sem stjórnarformaður var vegna stutts lífstíma meirihluta í borgarstjórn á þeim tíma.

2006

Loading...
Skýrsla jafnréttisnefndar

Í skýrslu jafnréttisnefndar Orkuveitunnar 2006 var farið yfir hvernig jafnréttisáætlun var fylgt og staða jafnréttis metin. Hlutfall kvenna í stjórnendahópi hafði aukist þar sem kvenkyns deildarstjórum hafði fjölgað úr 10% 2001 í 22% 2006.

2002

Loading...
Orkuveitan hlýtur jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs

Meginástæður voru að Orkuveitan hafði unnið markvisst að jafnréttismálum um nokkurt skeið, sett sér skýra jafnréttisstefnu, skipað jafnréttisnefnd, athugað launamun starfsfólks sem var með því minnsta sem sést hafði hérlendis, framkvæmt viðhorfskönnun meðal starfsfólks og veitt námsstyrki til kvenna í verkfræði- og tækninámi.

Loading...
Fyrsta konan til að útskrifast í jarðlagnatækni vann hjá Orkuveitunni

Fyrsta konan til að útskrifast úr jarðlagnatækni á vegum Samorku og Menningar- og fræðslusamtökum alþýðu var starfandi hjá Orkuveitunni.

2001

Loading...
Dæturnar með í vinnuna

Stúlkur á aldrinum 8–15 ára fylgdu aðstandendum sínum í vinnuna árin 2001 og 2002 sem hluti af verkefninu Auður í krafti kvenna. Stúlkurnar fengu kynningu á Orkuveitunni og störfum innan hennar. Í fyrra skiptið mættu 22 stúlkur en seinna árið mættu rúmlega 70 stúlkur og fjölgaði því um nálega 50 milli ára.

Loading...
Samstarfssamningur Háskóla Íslands og Jafnréttisráðs

Árin 2000–2002 lagði Orkuveitan 200.000 kr. árlega til átaksverkefnis sem miðar að því að jafna kynjaskiptingu í náms- og starfsvali og auka hlut kvenna í forystustörfum á íslenskum vinnumarkaði.

Loading...
Karlmenn fá rétt til fæðingarorlofs staðfestan með lögum

Réttur karlmanna til fæðingarorlofs var tekinn inn í þremur áföngum en árið 2001 áttu þeir rétt á einum mánuði. Samhliða breytingunum fóru fleiri karlkyns starfsmenn Orkuveitunnar í fæðingarorlof.

2000

Loading...
Launakönnun

Árið 2000 var gerð launakönnun og í ljós kom að óútskýrður launamunur milli karla og kvenna var á bilinu 2,5-3,5%.

Loading...
Könnun um upplifun starfsfólks af jafnrétti og starfsmannamálum

Í júlí 2000 var gerð könnun meðal starfsfólks um upplifun þess í vinnunni. Spurt var hvernig fólki liði í vinnunni, hvort það upplifði streitu, þætti vinnan þess áhugaverð og hvort það væri hvatt áfram af yfirmanni til framgöngu í starfi. Gögnin voru greind eftir kyni og aldri og í ljós kom að konur voru síður hvattar til að sækjast eftir stöðu- og launahækkun (22% karla á móti 16% kvenna), konur upplifðu meiri streitu í starfi og voru síður hvattar til að sækja ráðstefnur. Fleiri konur en karlar svöruðu að barneignir hefðu áhrif á starfsframa.

Loading...
Jafnréttisáætlun

Árið 2000 voru markmiðin í jafnréttisáætlun að jafna kynbundinn launamun, veita jafnan aðgang að starfsmenntun, gera öllu starfsfólki kleift að samræma vinnu og fjölskyldulíf, fjölga konum í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum, ráða það kyn sem var í minnihluta í deild ef umsækjendur voru metnir jafn hæfir, fara yfir og jafna vinnuaðstæður, og greina stöðu jafnréttismála ýtarlega svo hægt væri að stuðla betur að jafnrétti.

Loading...
Hið gullna jafnvægi

Frá 2000–2001 tók Orkuveitan þátt í verkefninu Hið gullna jafnvægi sem miðaði að því að auka jafnvægi á milli vinnu og einkalífs hjá starfsfólki og auka sveigjanleika í störfum. Fyrirtækin sem tóku þátt í verkefninu fengu leiðbeiningar og fræðsluefni um hvernig ætti að ráða og halda í hæft starfsfólk og hvernig mætti auka starfsánægju. Þá fengu þau tvenn viðtöl með ráðgjöfum IMG-Gallup og fulltrúar mættu á fimm vinnustofur og fengu fræðslu.

1999

Stofnun Orkuveitunnar

Loading...
Jafnréttisnefnd

Jafnréttisnefnd var starfandi frá stofnun Orkuveitunnar. Nefndin útbjó jafnréttisáætlun þar sem markmið fyrirtækisins og tölfræðileg gögn um stöðu jafnréttismála voru sett fram.

Loading...
Námsstyrkir til kvenna í iðn- og tækninámi

Námsstyrkir voru veittir konum í iðn- og tækninámi frá árinu 1997, fyrst frá Hitaveitu Reykjavíkur og eftir það frá Orkuveitunni. Styrkirnir voru framlag Orkuveitunnar til stuðnings að auknu kynjajafnvægi í iðn- og tæknigreinum á Íslandi.

Rafmagnsveita Reykjavíkur

Loading...
1996 - Jafnréttisáætlun

Jafnréttisáætlun var gerð fyrir árin 1996–2000 þar sem fyrirtækið setti sér markmið til að auka jafnrétti milli karla og kvenna. Markmiðin voru meðal annars að fjölga konum í ábyrgðarstöðum, endurmeta hefðbundin kvennastörf til launa, auka fræðslu um jafnrétti fyrir starfsfólk og kynna tæknistörf í skólum sérstaklega fyrir konum. Þá átti starfsfólk kost á tímabundnu hlutastarfi eftir fæðingarorlof.

Loading...
1997 - Jafnréttishópur stofnaður

Árið 1997 var stofnaður jafnréttishópur innan Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Starfshópurinn lét kortleggja fyrirtækið frá sjónarhorni jafnréttismála. Í ljós kom að af 237 starfsfólki voru 55 konur. Skipting kvenna niður á deildir er sambærileg við daginn í dag en mun fleiri konur voru í skrifstofustörfum en á þær hallaði í tækni- og iðnstörfum. Á milli 1996 og 1997 voru laun kvenna hjá fyrirtækinu hækkuð meira en karla í tilraun til að leiðrétta launamun milli kynjanna.