Rannsóknarleyfi í Rangá í Fellum
Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Orkuveitu Reykjavíkur rannsóknarleyfi til að kanna fýsileika mögulegrar vatnsaflsvirkjunar í Rangá í Fellum í Múlaþingi. Leyfið felur í sér heimild til rannsóknar og gagnaöflunar á afmörkuðu rannsóknarsvæði og er liður í undirbúningi og frumathugun á mögulegum virkjunarkostum.
Afla þarf frekari sjálfbærrar orku á næstu áratugum til að mæta vaxandi orkuþörf, ákalli um grænar lausnir og til að tryggja orkuöryggi til framtíðar.
Áhersla á vandaða málsmeðferð
Rannsóknarleyfið gildir í fimm ár og heimilar undirbúningsrannsóknir og mælingar sem ætlað er að auka þekkingu á vatnafari, jarðfræði og öðrum lykilþáttum sem skipta máli fyrir hönnun, umhverfismat og hagkvæmni. Á þessu stigi er eingöngu um rannsóknir og frumathugun að ræða og ekki hefur verið tekin ákvörðun um framkvæmdir.
Ólíkar útfærslur eru til skoðunar þar sem Sandvatn yrði nýtt sem inntaks- og/eða miðlunarlón og vatni veitt að stöðvarhúsi með niðurgrafinni þrýstipípu. Gert er ráð fyrir að uppsett afl geti numið allt að átta MW, en endanleg stærð virkjunarinnar ræðst af frekari rannsóknum.
Orkuveitan leggur áherslu á vandaða málsmeðferð og að farið sé að öllum viðeigandi reglum um náttúruvernd, skipulag og umhverfismat. Niðurstöður rannsókna munu meðal annars nýtast til að meta hvort og með hvaða hætti verkefnið geti gengið áfram með lágmörkun umhverfisáhrifa. Þegar frekari niðurstöður úr rannsóknum liggja fyrir verður metið hvort tilefni sé til að vinna verkefnið áfram inn í formlegt skipulags- og matsferli, í samráði við sveitarfélag og aðra hagsmunaaðila.
Sjálfbær orkuvinnsla mikilvæg fyrir samfélagið allt
Orkuveitan er orku- og veitufyrirtæki í almannaeigu sem hefur um áratugaskeið verið burðarás í orkuöflun fyrir samfélagið. Stefna Orkuveitunnar er að vera aflvaki sjálfbærrar framtíðar. Það felur meðal annars í sér að sjálfbær og fjölbreytt orkuframleiðsla verði aukin umtalsvert í markvissum skrefum.
„Orkuþörf í samfélaginu fer vaxandi og Orkuveitan hefur það mikilvæga hlutverk að kanna mögulega orkukosti með framtíð komandi kynslóða og hagsmuni samfélagsins í huga. Rangá í Fellum er liður í því.“ segir Harpa Pétursdóttir, forstöðumaður Nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni. „Þá getur sjálfbær orkuöflun styrkt svæðisbundna þróun og atvinnulíf.“