Jarðhitarannsóknir í Krýsuvíkursveimum
© Einar Örn Jónsson
Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Orkuveitunni leyfi til leitar og rannsókna á jarðhita á afmörkuðu svæði á Krýsuvíkursveimum í sveitarfélögunum Hafnarfjarðarbæ og Grindavíkurbæ. Leyfið gildir til fimm ára.
Krýsuvíkursveimar er svæði norðan við Krýsuvík þar sem ekki er vitað um jarðhita á yfirborði. Markmið rannsóknanna er því að afla nýrrar þekkingar á sprungu- og gangasveimum eldstöðvakerfisins á svæðinu og meta hvort það geti stutt við framleiðslu á heitu vatni og/eða raforku. Á þessu stigi er eingöngu um rannsóknir og frumathugun að ræða og ekki hefur verið tekin ákvörðun um framkvæmdir.
Orkuveitan leggur áherslu á vandaða málsmeðferð og að farið sé að öllum viðeigandi reglum um náttúruvernd, skipulag og umhverfismat. Þegar frekari niðurstöður liggja fyrir verður metið hvort tilefni sé til að vinna verkefnið áfram inn í formlegt skipulags- og matsferli, í samráði við landeigendur, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila.