Nýsköpunarverkefni

Loading...

Orkuveitan hefur verið í fararbroddi í nýsköpun og þróun á sviði loftslags- og umhverfismála undanfarinn áratug.

Unnið er að nýsköpun og þróun innan móðurfélagsins, í samstarfi við dótturfélög og í samvinnu við háskólasamfélagið innanlands og erlendis með áherslu á virðisaukandi lausnir sem stuðla að bættri auðlindanýtingu, kolefnishlutleysi og aukinni orkuframleiðslu. Samstarf atvinnulífs, háskólasamfélagsins og sveitarfélaga er oftar en ekki forsenda þess að hugmyndir geti þróast yfir í raunveruleg verkefni sem nýtast atvinnulífi og samfélagi.

Meðal virkra nýsköpunarverkefni eru verkefni sem snúa að verðmætasköpun úr aukaafurðum þvert á Orkuveituna. Þar má nefna nýtingu sands og fitu úr fráveitu, nýtingu kísils úr jarðhitavatni virkjana Orku náttúrunnar og nýtingu jarðhitavatns eftir að það hefur verið nýtt til framleiðslu heits vatns fyrir hitaveitu höfuðborgarsvæðisins.

Orkuveitan er jafnframt virkur þátttakandi í ýmsum rannsóknar- og nýsköpunarverkefnum sem hlotið hafa styrki frá t.d. Evrópusambandinu og Geothermica. Neðar á þessari síðu má finna nokkur dæmi um styrkverkefni sem Orkuveitan hefur tekið þátt í á síðustu árum.