Ársfundur Orkuveitunnar 2026

Ársfundur Orkuveitunnar var haldinn þann 16. apríl í höfuðstöðvum okkar að Bæjarhálsi 1 í Reykjavík.

Í ár var sjónum beint að því hvernig aukin orkuöflun og ábyrg auðlindanýting skapa raunveruleg verðmæti fyrir samfélagið og styrkja samkeppnishæfni Íslands til framtíðar.

Á fundinum var fjallað um hlutverk Orkuveitunnar og fyrirtækja – Veitna, Orku náttúrunnar, Carbfix og Ljósleiðarans – í uppbyggingu orku, innviða og nýsköpunar fyrir vaxandi samfélag.

Fulltrúar atvinnulífs og stjórnvalda tóku þátt í umræðum um framtíð orkunnar á Íslandi, þar á meðal fjármálaráðherra og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.


Hreinu tækifærin eru hafin

– orkuöflun, nýting auðlinda og samkeppnishæfni Íslands

Sævar Freyr

Orkuveitan áformar að fjárfesta fyrir um 230 milljarða króna á næstu fimm árum m.a. í aukinni orkuöflun og innviðum. Sævar setti stóru myndina í orkumálum í samhengi og ræddi tækifærin – en einnig hvaða hindranir, regluverk og ákvarðanir skipta sköpum fyrir samkeppnishæfni Íslands.

Sævar sagði m.a. frá jákvæðum niðurstöðum úr jarðhitaleit á Hellisheiði, möguleika í vatnsafli, þróun orkukerfisins og nýtingu glatvarma til framtíðar.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar


Heitasta tækifærið

– þegar vísindi og þekking opna nýjar víddir í jarðhita

Hera fjallaði um mikilvægi vísinda í orkuöflun framtíðar og hvernig sú þekking sem byggst hefur upp á Íslandi í jarðhita er að skapa áður óséð tækifæri.

Sérstök áhersla verður lögð á djúpnýtingu og IDDP-3, eitt metnaðarfyllsta rannsóknaverkefni á sviði jarðhita í heiminum, og hvernig öflugt samstarf vísindafólks, verkfræðinga og fyrirtækja getur opnað nýjar leiðir til orkuöflunar fyrir komandi kynslóðir.

Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar


Tengjumst framtíðinni

– innviðir fyrir hálfa milljón Íslendinga

Brynja ræddi mikilvægi þess að orkan komist alla leið til samfélags sem stækkar hratt – þegar Íslendingar gætu orðið yfir hálf milljón á næstu 15 árum.

Lífsgæði sem við teljum sjálfsögð – heitt vatn, örugg orka og traustir innviðir – byggja á stöðugri uppbyggingu og viðhaldi. Í hverju þurfum við að fjárfesta og hvað þarf að setja í forgang? Og hvernig styrkir 50 milljarða uppbygging hitaveitu og dreifikerfa á næstu fimm árum getu samfélagsins til að vaxa og þróast.

Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla Veitna


Pallborð

Framtíð orkunnar á Íslandi

Birna Bragadóttir, stjórnandi verðmætasköpunar hjá Orkuveitunni, stýrði umræðum um hvernig Ísland getur nýtt tækifærin sem felast í aukinni orkuöflun, nýsköpun og uppbyggingu innviða. Fjallað var um forgangsröðun, stefnu og samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs til að tryggja næga orku og samkeppnishæfni Íslands til framtíðar.

Þátttakendur í pallborði:

  • Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
  • Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra
  • Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar
  • Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix