Upplýsingatæknistefna
Orkuveitan lítur á upplýsingatækni sem mikilvægan þátt í að styðja við rekstur fyrirtækisins og nauðsynlegan þátt í virðiskeðju þess. Upplýsingatæknistefna varðar hagnýtingu á upplýsingatækni í starfsemi fyrirtækisins þar sem kerfi, þjónusta og tækninýjungar skulu vera öflug stoð við þau markmið sem fyrirtækið hefur sett sér.
Gagnaöryggi er mikilvægur þáttur í rekstri upplýsingakerfa og er lögð áhersla á áreiðanlegar upplýsingar sem nýttar eru til stýringar, þjónustu og ákvarðanatöku.
Það er stefna Orkuveitunnar í upplýsingatækni að:
- kerfi og gögn séu áreiðanleg, aðgengileg og örugg
- heildaryfirsýn á upplýsingatækni sé á einum stað
- rekstur upplýsingatækni sé eins hagkvæmur og kostur er
- notendur upplýsingatækni hafi greiðan aðgang að þjónustu sem taki mið af þörfum þeirra hverju sinni
- styðja við frumkvæði og nýsköpun
Upplýsingatæknistefna Orkuveitunnar byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og er sett fram til samræmis við eigendastefnu fyrirtækisins.