Gæðastefna
Orkuveitan veitir örugga, áreiðanlega og hagkvæma þjónustu sem mætir þörfum fjölbreyttra viðskiptavina og samfélags.
Orkuveitan stuðlar að gæðavitund starfsfólks og virkri þátttöku í stöðugum umbótum. Starfsfólk og stjórnendur bera ábyrgð á að framfylgja stefnunni, hvert á sínu sviði, til að tryggja samræmd vinnubrögð og framúrskarandi þjónustu viðskiptavina.
Orkuveitan leggur sérstaka áherslu á:
- að veita framúrskarandi þjónustu
- að tryggja rekstraröryggi innviða
- að tryggja aðgengi að upplýsingum
Gæðastjórnunarkerfi Orkuveitunnar er í stöðugri þróun og metið með mælingum, úttektum og endurgjöf viðskiptavina. Gæðastefnan byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og sett fram til samræmis við eigendastefnu.
Orkuveitan uppfyllir lög, reglugerðir og aðrar kröfur sem um starfsemina gilda.
Mæling:
- Ánægja viðskiptavina (stefnumarkmið í heildarstefnu Orkuveitunnar)
- Mælikvarðar heildstæðrar skýrslugjafar um áhættustjórnun