27. apríl 2026

Jafnréttistímalína Orkuveitunnar

Jafnréttistímalína Orkuveitunnar

© Helga Björg Pétursdóttir

Orkuveitan hefur lengi lagt ríka áherslu á jafnrétti og inngildingu. Nú hefur jafnréttissaga Orkuveitunnar verið tekin saman og birt á heimasíðu okkar undir heitinu Jafnréttistímalínan, þar sem helstu verkefni og áfangar í jafnréttismálum eru dregin fram frá stofnun fyrirtækisins.

Hér má kynna sér Jafnréttistímalínu Orkuveitunnar.

Markmið verkefnisins var að kortleggja þessa vegferð, setja fyrri aðgerðir í samhengi og varpa ljósi á hvaða þættir skipta sköpum þegar raunverulegur árangur næst. Með því að taka viðtöl við starfsfólk og fara yfir gögn og myndir hefur orðið til mikilvægt yfirlit sem bæði varðveitir þekkingu og dregur fram þann árangur sem náðst hefur.

Verkefnið sýnir jafnframt að vilji einn og sér dugar skammt. Árangur í jafnréttismálum byggir á markvissum aðgerðum, skýrri forystu og ábyrgð í daglegu starfi.

Við höfum sett okkur skýr markmið um að vera forystuafl í fjölbreytileika og jafnrétti. Sú vegferð felur í sér að horfa gagnrýnið á kerfi og venjur sem ekki voru hönnuð með fjölbreytileika í huga og taka meðvitaðar ákvarðanir um að breyta þeim. Þar liggur stærsta áskorunin en einnig stærsta tækifærið.

Gaman er að segja frá því að mastersnemendur úr HÍ í námskeiðinu Fjölbreytileiki og inngilding voru þau fyrstu sem fengu að sjá jafnréttistímalínuna þegar þau komu í heimsókn til okkar á Bæjarhálsinn fyrr á árinu til að kynnast jafnréttisstarfi Orkuveitunnar. Við þökkum þeim kærlega fyrir góða heimsókn.

jafnréttistímalína kynning

Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar

„Það hefur verið bæði lærdómsríkt og gefandi að rýna í þessa sögu og sjá hversu margt hefur áunnist með markvissum aðgerðum. Verkefnið hefði ekki orðið að veruleika án framlags Ásu Köru, starfsnemans okkar, sem vann það af miklum metnaði og fagmennsku. Fyrir okkur er þessi vinna ekki aðeins sagan heldur mikilvægt verkfæri til að móta næstu skref.“

– Ása Björk Jónsdóttir og Erna Sigurðardóttir mannauðsleiðtogar