Viðvörunarkerfi fyrir fíkniefnatengdar hættur – nýjar aðferðir til að greina þróun í samfélaginu
Doktorsverkefnið „Viðvörunarkerfi fyrir fíkniefnatengdar hættur á Íslandi: Greining fjölþættra sýna með LC-MS aðferðum“, unnið af Adam Erik Bauer, doktorsnema við Háskóla Íslands, hlaut 3 milljón króna styrk úr VOR – vísinda- og frumkvöðlasjóði Orkuveitunnar 2025.
Markmið verkefnisins er að þróa og sannreyna áreiðanlega og næma greiningaraðferð fyrir fíkniefni, ávanabindandi lyf og nýmynduð efni í fjölbreyttum sýnum, þar á meðal fráveituvatni, lífsýnum og efnissýnum. Með því að greina þessi efni í fráveitu er hægt að fá heildstæða mynd af neyslumynstri í samfélaginu, án þess að rekja upplýsingar til einstaklinga.
Aðferðin byggir á notkun vökvaskiljunar tengdri massagreini (LC-MS), sem gerir það kleift að greina mjög lítið magn efna og jafnvel ný efni sem ekki hafa áður verið skráð. Slíkar mælingar eru sérstaklega mikilvægar í ljósi þess að markaður fyrir fíkniefni er síbreytilegur og ný efni geta birst hratt, oft án þess að hefðbundin greiningarkerfi nái að fylgja þróuninni.
Með þróun viðvörunarkerfis er hægt að greina nýjar hættur fyrr, fylgjast með breytingum í neyslu og styðja við upplýstar ákvarðanir stjórnvalda og heilbrigðisyfirvalda. Þannig getur verkefnið lagt sitt af mörkum til forvarna, lýðheilsu og aukins öryggis í samfélaginu.
Adam Erik Bauer segir styrkinn skipta miklu máli fyrir framgang verkefnisins:
„Styrkur VOR sjóðsins gerir mér kleift að staðfesta fleiri nýmynduð fíkniefni og lyf í fráveituvatni Reykjavíkur með auknu öryggi, þar sem staðalefni ásamt annara sértækra tækjahluta geta verið dýr. Einnig styður styrkurinn við birtingu niðurstaðna í opnum aðgangi, sem tryggir að mikilvæg vísindaleg þekking sem aflast við rannsóknina nýtist sem víðast.“
Verkefnið er gott dæmi um hvernig VOR – vísinda- og frumkvöðlasjóður Orkuveitunnar styður við rannsóknir sem hafa bein samfélagsleg áhrif, jafnvel utan hefðbundins sviðs orkumála. Með því að nýta fráveitukerfið sem gagnagjafa er Orkuveitan þátttakandi í að efla þekkingu sem getur nýst til að bregðast hraðar við nýjum áskorunum í lýðheilsu og samfélagi.
Hér má sjá fréttir sem snúa að niðurstöðum verkefnisins:
https://www.visir.is/g/20252794209d/nytt-fikni-efni-laedist-inn-a-is-lenskan-markad
https://www.visir.is/g/20252808562d/storfelld-fjolgun-fikniefnamala-tengd-norraenu
