Varnarfóðring fyrir háhita- og djúpborunarholur - ný lausn til að lengja líftíma jarðhitahola
Verkefnið „Varnarfóðring fyrir háhita- og djúpborunarholur (ProCase)“, á vegum Gerosion, hlaut nýverið 5 milljón króna styrk úr VOR – vísinda- og frumkvöðlasjóði Orkuveitunnar.
Á undanförnum árum hefur áhugi á jarðhita aukist verulega á heimsvísu, sem umhverfisvænni valkostur en jarðefnaeldsneyti. Jarðhiti er lykilþáttur í orkunotkun á Íslandi; um 65% af heildarorkunotkun landsins byggir á jarðhita og um fjórðungur rafmagnsframleiðslu fer fram með nýtingu hans. Til að nýta jarðhitann þarf að bora djúpar borholur þar sem heit gufa og vatn eru leidd upp á yfirborð. Slíkri nýtingu fylgja þó töluverðar áskoranir, enda inniheldur jarðhitagufa tærandi efni á borð við brennisteinsvetni (H₂S), koltvísýring (CO₂) og klóríðjónir, sem geta haft veruleg áhrif á efni og búnað.
Vandinn verður enn meiri þegar horft er til dýpri og heitari borhola. Þar geta bæði tæring og áhrif varmaþenslu dregið úr burðarþoli fóðringa og stytt líftíma holanna, með tilheyrandi kostnaði vegna viðhalds, framleiðslutruflana og jafnvel nýrra borana.
Markmið ProCase-verkefnisins er að taka næstu skref í þróun varnarfóðringar fyrir háhita jarðhitaborholur, sem ver stálfóðringar gegn tæringu og varmaþensluáhrifum. Með slíkri lausn er hægt að viðhalda burðarþoli borhola, lengja líftíma þeirra og draga verulega úr kostnaði við viðhald og endurnýjun búnaðs.
Í dag eru lausnir á markaði takmarkaðar þegar kemur að þessum aðstæðum, enda eru fá efni sem þola bæði mikinn hita og mjög tærandi umhverfi til lengri tíma. ProCase miðar að því að brúa þetta bil með markvissri efnisþróun, prófunum og nýsköpun sem tekur mið af raunverulegum rekstrarskilyrðum í jarðhitavinnslu.
Teymi Gerosion leggur áherslu á að styrkurinn úr VOR skipti sköpum fyrir framgang verkefnisins:
„Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn frá VOR – vísinda- og frumkvöðlasjóði Orkuveitunnar, sem mun skipta sköpum fyrir framgang ProCase verkefnisins. Styrkurinn gerir okkur kleift að ráðast í mikilvægar rannsóknir, prófanir á efnum og vinna að nýsköpun með markvissum hætti. Innan verkefnisins erum við að þróa vöru sem er sniðin að mjög krefjandi rekstrarskilyrðum og afmörkuðum kúnnahópi. Orkuveitan er einn af mögulegum lokanotendum ProCase, svo stuðningur VOR styrkir stöðu okkar sem frumkvöðlar og gefur verkefninu aukið vægi gagnvart samstarfsaðilum og fjárfestum.“
Sunna Ólafsdóttir og Sigrún Nanna Karlsdóttir tóku við styrknum fyrir hönd Gerosion, en þær tóku jafnframt við styrk fyrir annað verkefni sem snýr að efnisrannsóknum og líkanagerð jarðhitaborholufóðringa í tærandi jarðhitaumhverfi. Það skilar fyrst og fremst þekkingu og greiningartólum, en ProCase-verkefnið skilar hagnýtri vöru sem nýtist beint til að lengja líftíma jarðhitaborhola. Verkefnin tvö styðja þannig hvort annað og byggja upp þekkingu sem nýtist bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.
ProCase-verkefnið er gott dæmi um hvernig VOR – vísinda- og frumkvöðlasjóður Orkuveitunnar styður við hagnýta rannsóknarvinnu og tæknilausnir sem svara raunverulegum áskorunum í orkuvinnslu. Með þróun lausna sem lengja líftíma jarðhitahola og draga úr kostnaði er Orkuveitan að leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar nýtingar jarðhita, aukins afhendingaröryggis og öflugri orkuinnviða til framtíðar.
