Velkomin til starfa hjá Orkuveitunni

(English version below)

Hér eru gagnlegar upplýsingar sem munu koma að góðum notum fyrstu vikurnar í nýju starfi.

Við í Mannauði aðstoðum þig með allt varðandi launamál, ráðningasamning, lífeyrissjóðsmál, skattkort, styrki, fræðslu og fleira mannauðstengt. Við erum líka alltaf til í spjall um líðan, samskipti, starfsánægju og annað sem brennur á þér.

Mannauður er staðsettur á 1. hæð, norðanmegin, að Bæjarhálsi 1. Þú getur alltaf sent okkur tölvupóst á mannaudur@or.is.

Við erum öll Orkuveitan

Fyrirtæki Orkuveitunnar eru Orka náttúrunnar, Veitur, Ljósleiðarinn og Carbfix.

Áður en þú byrjar

Áður en þú hefur störf munum við senda þér rafrænt form til útfyllingar. Þar gefur þú okkur nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að stofna þig sem launþega. Mikilvægt er að klára þetta ferli sem allra fyrst. Ef spurningar vakna eða ef þú lendir í vandræðum, hafðu þá samband á mannaudur@or.is.

2024-09-20 17.35.332.jpg

Auðkennismynd

Við biðjum þig um að bóka myndatöku hjá Ljósmyndastofu Rutar og Silju (rut.is) nokkrum dögum fyrir fyrsta starfsdag. Myndina notum við á auðkenniskort sem verður tilbúið á fyrsta vinnudeginum þínum. Mikilvægt er að ganga alltaf með auðkenniskortið á sér innanhúss. Á fyrsta degi færðu sendan tölvupóst með upplýsingum um farsímaskilríki (app) sem þú notar til að komast inn í húsið. Ef svo óheppilega vill til að þú gleymir símanum heima er hægt að fá lánskort í móttökunni á 1. hæð á Bæjarhálsi.

Launamál

Upplýsingar um skattkort má nálgast hjá Ríkisskattstjóra á skatturinn.is. Þar sérð þú stöðu persónuafsláttar og hvenær skattkortið var síðast notað. Í rafræna forminu sem við sendum þér áður en þú hefur störf er reitur til að tengja stöðu persónuafsláttar. Þannig skilar þú inn skattkortinu þínu. Ef þú óskar eftir að nýta séreignasparnað sendir þú afrit af samningnum sömuleiðis á mannaudur@or.is.

Mánaðarlaun eru greidd út 1. dag hvers mánaðar. Yfirvinna og auka álag reiknast frá 16. til 15. hvers mánaðar.

Tækni- og tölvumál

Tækniþjónusta aðstoðar þig með allt sem tengist tölvumálum, prenturum og tæknimálum. Best er að hafa samband með tölvupósti á 6677@or.is.

Fylgstu með því sem er að gerast

Við hvetjum þig til að fylgjast með á samfélagsmiðlum Orkuveitunnar og dótturfyrirtækja þar sem fréttir birtast af því sem við erum að fást við alla daga. Þú finnur fyrirtæki Orkuveitunnar m.a. á Facebook, Instagram og LinkedIn.

Workvivo er nokkurs konar vinnu-Facebook sem er eingöngu aðgengilegt starfsfólki. Þar birtast upplýsingar varðandi vinnustaðinn.

Stefnudagur 2025

Félagslífið, aðstaða og fríðindi

Á meðal árvissra viðburða eru árshátíð, haustfagnaður og tónleikar. Fjölmargir klúbbar eru starfandi, m.a. crossfit-, fótbolta-, golf-, blak- og prjónaklúbbur.

Starfsmannafélagið (STOR) býður aðgang að orlofsíbúðum á Suður-, Vestur- og Norðurlandi. Einnig er hægt að leigja Félagsheimilið í Elliðaárdal.

Á Bæjarhálsi er líkamsræktarsalur sem kallast Bræðslan. Starfsfólk getur nýtt sér aðstöðuna sér að kostnaðarlausu og þar er einnig gufa og hvíldarherbergi.

Okkur bjóðast ýmsir styrkir en við bendum sérstaklega á Karítas velferðartorg Orkuveitunnar. Þar er hægt að panta þjónustu ýmissa sérfræðinga, t.d. sálfræðinga og sjúkraþjálfara, allt að þrisvar sinnum á ári endurgjaldslaust.

Við hvetjum þig líka til að nýta aðild Orkuveitunnar að endur- og símenntunarvef Dokkunnar og Stjórnvísi.

Hlökkum til að sjá þig!

ellidaarstod_https://ellidaarstod.is/?p=41290_DSC09386-1800x1200.jpg

//

Welcome to Orkuveitan!

Here is some useful information to help you get started during your first few weeks in your new role.

The HR team is here to assist you with everything related to payroll, your employment contract, pension matters, tax cards, employee benefits, training, and other HR-related topics. We are always open to chat about your wellbeing, workplace relationships, job satisfaction, or anything else that is on your mind.

The HR team is located on the first floor (north side) at Bæjarháls 1. You can always reach us by email at mannaudur@or.is.

We Are All Orkuveitan

Reykjavík Energy consists of ON Power (Orka náttúrunnar), Veitur Utilities, Ljósleiðarinn, and Carbfix.

Before You Start

Before your first day, we will send you an electronic form to complete. This form collects the information we need to register you as an employee in our payroll system.

Please complete the form as soon as possible. If you have any questions or encounter any issues, don't hesitate to contact us at mannaudur@or.is.

2024-09-20 17.35.33-1.jpg

ID Photo

Please book an appointment for an ID photo with Rut & Silja Photography Studio (rut.is) a few days before your first working day.

Your photo will be used to prepare your employee ID card, which will be ready on your first day. It is important to wear your ID card whenever you are in the building.

On your first day, you will also receive an email with instructions for activating your mobile access pass, which allows you to enter the building using your phone. If you happen to forget your phone, you can borrow a temporary access card from the reception desk on the first floor at Bæjarháls.

Payroll

Information about your tax card can be found on the Icelandic Revenue and Customs website (skatturinn.is). There you can view your personal tax credit status and see when your tax card was last used.

The electronic form you receive before your start date includes a section where you can assign your personal tax credit. This is how you submit your tax card information.

If you would like to contribute to a voluntary private pension scheme, please send a copy of your agreement to mannaudur@or.is.

Monthly salaries are paid on the first day of each month. Overtime and additional pay are calculated for the period from the 16th of one month through the 15th of the next.

IT Support

Our IT Service Desk can assist you with anything related to your computer, printers, or other technical issues. The easiest way to reach the team is by email at 6677@or.is.

Stay Connected

We encourage you to follow Orkuveitan and its subsidiaries on social media, where we regularly share news and updates about our work. You can find us on Facebook, Instagram, and LinkedIn.

We also use Workvivo, our internal social platform exclusively for employees. There you will find company news, updates, and information about workplace activities.

Stefnudagur 2025

Social Life, Facilities and Employee Benefits

Throughout the year we host a variety of events, including our annual staff party, autumn celebration, and concerts.

There are also several employee clubs you can join, including CrossFit, football, golf, volleyball, and knitting clubs.

Our staff association, STOR, offers access to holiday homes across South, West, and North Iceland. Employees can also rent the association's lodge (Félagsheimili) in Elliðaárdalur.

At Bæjarháls you'll find our on-site fitness centre, Bræðslan, which employees can use free of charge. The facility also includes a steam room and a relaxation room.

We offer a range of employee wellbeing benefits. In particular, we encourage you to make use of Karítas, Orkuveitan's wellbeing hub, where you can book appointments with professionals such as psychologists and physiotherapists free of charge up to three times per year.

We also encourage you to take advantage of Orkuveitan's membership with Dokkan, an online professional development platform, and Stjórnvísi, which provides continuing education and professional networking opportunities.

Welcome to the team, we are excited to have you with us!

ellidaarstod_https://ellidaarstod.is/?p=69340_DSC01827-1800x1200.jpg