Ísland leiðir í nýtingu ljósleiðara í Evrópu þriðja árið í röð
Ísland heldur toppsæti sínu sem það Evrópuland þar sem hæst hlutfall heimila nýtir sér ljósleiðaratengingu til að uppfylla gagnaflutningsþörf heimilisins. Þetta var kynnt á fundi í dag þar sem Fibre to the Home Council Europe kynnti stöðuna í álfunni miðað við september síðastliðinn. Í skýrslunni, sem tekur mið af stöðunni í september 2021, nýttu 78,4% íslenskra heimila sér ljósleiðaratengingu. Í öðru sæti var Spánn með 68,4% nýtingu og í þriðja sæti Svíþjóð með 64,4% nýtingu.

Um 90% heimila á Ísland eru ljósleiðaratengd, þau heimili sem ekki hafa aðgang að ljósleiðara í dag eru nánast öll í þéttbýli á landsbyggðinni. Ljósleiðarinn leggur þúsund þráða landshring til að efla öryggi fjarskipta í landinu og tryggja landsmönnum hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar.
„Það er virkilega gaman að sjá þennan gríðarlega góða árangur og hvað Íslendingar hafa verið duglegir að nýta sér ljósleiðara. Við skorum á alla sem eiga kost á ljósleiðara að færa sig yfir á hann.“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans. „Það eru bara um 10% heimila sem eiga eftir að fá ljósleiðara á landinu. Við hlökkum til að ráðast í það verkefni í samvinnu við önnur innviðafyrirtæki. Við erum efst í Evrópu, klárum landið saman og komum Íslandi í fyrsta sæti á heimsvísu!“