1. desember 2015

Stöðug og góða rekstarafkoma OR

Loading...

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) gekk vel á fyrstu níu mánuðum ársins 2015. Aðhald í rekstri heldur áfram að skila fyrirtækinu góðum og stöðugum rekstri þrátt fyrir óhagstæða þróun sumra ytri þátta. Planið, rekstraráætlun fyrir árin 2011 til og með 2016 hefur þegar skilað tilsettum árangri. Árshlutareikningur samstæðu OR fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2015 var samþykktur af stjórn í dag og sýnir hann 3,1 milljarðs króna hagnað.

Árshlutareikningur OR F3 2015

Framvinduskýrsla Plansins F3 2015

Planið lykillinn að bættri afkomu

Aðgerðaáætlunin, sem hleypt var af stokkunum snemma árs 2011, Planið, hafði í lok september 2015 skilað OR 53,2 milljörðum króna í bættri sjóðstöðu. Það er 7,3 milljörðum króna umfram markmið tímabilsins en heildarávinningi Plansins, 51,3 milljörðum króna, var þegar náð á miðju þessu ári.

Vægi einstakra þátta

Myndin sýnir vægi einstakra þátta í árangri Plansins. Um einn sjötta hluta árangursins má rekja til breytinga á gjaldskrám en veigamesti þátturinn er lækkun fjárfestinga í veitukerfum. Lækkun rekstrarkostnaðar, sem er varanleg aðgerð, skýrir 10% árangursins.

Samstæða OR

Stærstu fyrirtækin innan OR-samstæðunnar eru Veitur ohf., sem sjá um allan sérleyfisrekstur (það er hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu) Orka náttúrunnar ohf., sem framleiðir rafmagn og heitt vatn í virkjunum fyrirtækisins, og Gagnaveita Reykjavíkur, sem byggir upp og rekur Ljósleiðarann, háhraða net fyrir gagnaflutninga. Móðurfélagið rekur meðal annars þjónustuver fyrir öll dótturfyrirtækin og heldur utan um fjármál þeirra.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR

Þessi árshlutareikningur sýnir að festa er í rekstri fyrirtækjanna innan OR-samstæðunnar. Sparnaður í rekstri er varanlegur og hagsýni gætt í hvívetna. Efld áhættustýring dregur úr sveiflum vegna ytri þátta og þess vegna skilum við afgangi þrátt fyrir að álverð sé óvenjulega lágt. Framundan eru ákvarðanir um hvað tekur við að Planinu loknu. Ég tel að tekist hafi að skapa meiri sátt um starfsemi OR og við munum leggja okkur fram um að viðhalda henni.

Rekstur fyrstu 9 mánuði hvers árs20112012201320142015
Allar fjárhæðir eru á verðlagi hvers árs
Rekstrartekjur ..................................................24.38827.28628.80626.96028.768
Rafmagnskaup og -flutningur.............................(3.610)(3.490)(3.902)(3.644)(4.645)
Laun og annar rekstrarkostnaður.......................(5.300)(5.958)(5.892)(5.551)(5.889)
EBITDA15.47817.83819.01217.76618.234
Afskriftir ..........................................................(6.178)(6.862)(6.251)(6.510)(7.172)
Rekstrarhagnaður EBIT9.30010.97612.76211.25611.061
Afkoma tímabilsins(5.344)2.5805.7967.8793.093
Sjóðstreymi:
Innleystar vaxtatekjur ......................................9887176442377
Greidd vaxtagjöld .............................................(2.309)(3.869)(3.448)(3.420)(3.181)
Handbært fé frá rekstri .....................................14.11815.57216.93417.88518.126
Veltufé frá rekstri .............................................12.93713.08614.97312.67714.734