2. mars 2016

Skuldir OR lækkað um 76 milljarða á sex árum

Loading...

Ársreikningur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) staðfestir viðsnúning í rekstri OR og dótturfélaganna á síðustu árum. Með traustri og stöðugri afkomu rekstursins hafa nettó vaxtaberandi skuldir lækkað um 76 milljarða króna frá árslokum 2009. Á sama tímabili hefur eiginfjárhlutfall OR samstæðunnar hækkað úr 14% í 37%.

Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Auk móðurfélagsins eru helstu fyrirtækin í samstæðu OR þessi; Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur.

Ársreikningur samstæðu 2015

Lykiltölur fjármála OR 2015

Fjárfestingar tvöfölduðust

Rekstrargjöld fyrirtækjanna innan samstæðu OR hafa verið í jafnvægi síðustu ár og sparnaður í rekstrinum er varanlegur. Þá hafa áhættuvarnir vegna breytinga á álverði dregið úr sveiflum í tekjum. Fjárfestingar fyrirtækjanna tvöfölduðust milli áranna 2014 og 2015 og námu 10,2 milljörðum króna á síðasta ári. Hverahlíðarlögnin að Hellisheiðarvirkjun og viðhaldsboranir á Hengilssvæðinu voru helstu fjárfestingar við virkjanir ON, fráveituframkvæmdir á Vesturlandi og endurnýjun í veitukerfum þar og á höfuðborgarsvæðinu voru umfangsmestu fjárfestingar Veitna. Gagnaveita Reykjavíkur lauk tengingu heimila í þéttbýli Reykjavíkur við Ljósleiðarann.

Skuldir lækkað mikið

Á árinu 2015 lækkuðu nettó vaxtaberandi skuldir OR um 14 milljarða króna. Í árslok 2015 námu þær 158 milljörðum króna og eins og súluritið sýnir hafa þær lækkað um 76 milljarða króna frá árslokum 2009.

Planið

Aðgerðum vegna Plansins má skipta í ytri og innri þætti. Ytri aðgerðir, lán frá eigendum og leiðrétting gjaldskrár, höfðu þá skilað 21,1 milljarði eða 38%. Aðgerðir innan fyrirtækisins höfðu í árslok 2015 skilað 33,9 milljörðum króna eða um 62% af heildarárangrinum.

Stöðuskýrsla aðgerðaáætlunar 2015

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR:

Viðsnúningurinn í fjármálum OR og dótturfyrirtækjanna hefur gengið vonum framar. Sú menningarbreyting sem orðin er í OR skilaði fljótt bættri afkomu. Okkur sýnist að batinn sé varanlegur.

Það kann að koma á óvart að einungis sjötta hver króna af heildarárangri Plansins hafi verið sótt í hækkun gjaldskrár. Fyrir fimm árum, þegar Planinu var hleypt af stokkunum, heyrðist sú skoðun að bjarga ætti OR með því einu að fara í vasa viðskiptavina. Sú var og er ekki raunin heldur hefur á nokkrum árum tekist að reisa við fjárhaginn á nýjum grunni. Þar eiga margir hlut að máli; eigendur fyrirtækisins, stjórn þess, stjórnendur og ekki síst starfsfólk allt. Það á þakkir skildar.

Rekstur samstæðu OR20112012201320142015
Allar fjárhæðir eru í mkr. á verðlagi hvers árs
Rekstrartekjur ......................................................33.62637.90539.20938.52640.357
Orkukaup og -flutningur...............................(5.016)(4.866)(5.402)(5.335)(6.400)
Laun og annar rekstrarkostnaður.........................(7.375)(7.995)(7.724)(8.346)(8.782)
EBITDA21.23525.04426.08424.84525.174
Afskriftir ...............................................................(8.881)(10.371)(8.927)(9.152)(10.747)
Rekstrarhagnaður EBIT12.35414.67317.15715.69314.428
Afkoma tímabilsins(556)(2.295)3.3508.8714.176
Sjóðstreymi:
Innleystar vaxtatekjur ..........................................127147209742677
Greidd vaxtagjöld ................................................(5.690)(7.093)(6.308)(4.293)(3.948)
Handbært fé frá rekstri ........................................16.93018.93520.03322.08421.815
Veltufé frá rekstri .................................................17.23119.88019.67518.88122.563