Orkuveitan | Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa

Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 6. nóvember 2025. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR031033 GB, OR180242 GB og OR180255 GB. Samtals bárust tilboð að nafnverði 2.540 m.kr.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 11.265 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 640 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 7,90-8,11%%. Tilboðum að fjárhæð 480 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 8,05%.

OR180242 GB ber fasta óverðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2042. Flokkurinn ber 4,50% fasta vexti og er uppgreiðanlegur árið 2037. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 11.058 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.540 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 7,49-7,70%.Tilboðum að fjárhæð 1.440 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 7,66%.

OR180255 GB ber fasta 2,60% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 39.771 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 360 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,60-3,69%. Tilboðum að fjárhæð 360 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,69%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:
Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@orkuveitan.is
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is