23. nóvember 2020

Miklar fjárfestingar hjá OR og dótturfyrirtækjum

Loading...

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið stöðugur fyrstu þrjá fjórðunga ársins 2020, fyrirtækið er vel í stakk búið til að flýta og auka þannig við fjárfestingar til að mæta afleiðingum heimsfaraldurs á íslenskt efnahagslíf. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 11,2 milljörðum króna en var 11,1 milljarður á sama tímabili í fyrra og framlegð rekstursins var 20,8 milljarðar eða 800 milljónum króna meiri en í uppgjöri eftir þriðja ársfjórðung 2019. 

Árshlutareikningur fyrstu níu mánaða ársins var samþykktur á fundi stjórnar OR í dag. Reikningurinn er uppgjör allrar samstæðunnar, sem auk móðurfélagsins telur Veitur, Orku náttúrunnar, Gagnaveitu Reykjavíkur og Carbfix.

Rekstur OR á fyrstu níu mánuðum árs 2016-2020

OR Árshlutareikningur samstæðu F3 2020

Miklar fjárfestingar – sterk sjóðstaða

Í takti við uppbyggingu á helstu þjónustusvæðum fyrirtækisins og ákvörðun um viðspyrnufjárfestingar vegna kórónuveirunnar, voru fjárfestingar með mesta móti á fyrstu þremur fjórðungum ársins og námu 11,4 milljörðum  króna. Helstu fjárfestingar tímabilsins tengjast uppbyggingu og viðhaldi veitukerfanna – vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu og rafveitu - fjárfestingu í nýjum borholum á Hengilssvæðinu ásamt tengingu heimila í Árborg og Reykjanesbæ við ljósleiðara. Þá er mikill kraftur í viðskiptaþróun Carbfix.

Framkvæmdirnar eru fjármagnaðar með framlegð rekstursins og lántöku. Á dögunum greiddi OR upp lán sem eigendur fyrirtækisins veittu því á harðindaárunum eftir hrun og verið er að ganga frá láni hjá Norræna fjárfestingarbankanum upp á 80 milljónir Bandaríkjadala til 15 ára. Það fé fæst á mun hagstæðari kjörum en eigendalánið var og nýtist meðal annars til fjármögnunar á áðurnefndum verkefnum, sem öll eru umhverfisvæn.

Þrátt fyrir stöðugleika í rekstrarafkomu sýnir árshlutauppgjörið talsverðar breytingar á fjármagnsliðum. Þær má rekja að stærstum hluta til lækkandi  álverðs frá byrjun ársins. Verð fyrir rafmagn, sem selt er Norðuráli, tengist álverði í löngum sölusamningum. Verðlækkunin á tímabilinu er reiknuð út allan samningstímann og færð í rekstrarreikning samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Áhrif þessa á heildarafkomu OR á fyrstu níu mánuðum þessa árs voru mikil, eða liðlega 2,8 milljarðar króna. Neikvæð áhrif gengis á rekstur eru um 4,6 milljarðar. Á móti kemur jákvæð færsla á eigin fé um 7,4 milljarða vegna áhrifa gengis á efnahag. Þessar færslur hafa ekki áhrif á rekstrarhagnað, sjóðstöðu eða getu fyrirtækisins til fjárfestinga en hafa áhrif á reiknaða heildarniðurstöðu árshlutauppgjörsins. Hún er nú jákvæð um 0,7 milljarða króna en var á sama tímabili árið 2019 jákvæð um 4,4 milljarða króna.

Bjarni Bjarnason, forstjóri

„Það siglir enginn rekstur lygnan sjó í kófinu. Við okkur blasa sífellt ný viðfangsefni tengd heimsfaraldrinum. Við bregðumst skjótt við en grípum líka þau tækifæri sem skapast til að bæta og efla starfsemina. Tiltölulega hagstætt er að ráðast í fjárfestingar um þessar mundir; tilboð eru gjarnan lægri en á þenslutímum og fjármögnun fæst á góðum kjörum.

Við ákváðum strax í fyrravetur að ráðast í sérstakar viðspyrnufjárfestingar vegna kórónuveirunnar. Viðhaldsfjárfestingar og efling og stækkun veitukerfanna eru veigamestar í ár en nú fer líka að líða að framkvæmd í einu stærsta fjárfestingaverkefni okkar um hríð; uppfærslu á 160.000 orkumælum sem eru á heimilum og hjá fyrirtækjunum á veitusvæðum okkar en gömlu mælunum verður skipt út fyrir svokallaða snjallmæla. Útskiptin eru stórt skref inn í framtíðina sem við hlökkum til að móta með viðskiptavinum okkar.

Við vorum vel undir kórónuveiruna búin með viðbragðsáætlanir og starfsfólk hefur sýnt mikla ábyrgð og virðingu fyrir mikilvægi þjónustunnar í samskiptum við viðskiptavini og sín á milli. Þannig höfum við komið í veg fyrir að faraldurinn i bitnaði á þeirri mikilvægu grunnþjónustu sem Veitur, Orka náttúrunnar og Ljósleiðarinn veita.“

H3 2016H3 2017H3 2018H3 2019H3 2020
Fjárhæðir í
milljónum króna
Rekstrartekjur29.92131.31033.45933.57835.045
Rekstrarkostnaður(11.785)(11.744)(12.540)(13.)570(14.206)
EBITDA18.13619.56620.91920.00820.839
AfskriftirF3 2016(7.051)(6.965)(8.900)(9.606)
Rekstrarhagnaður (EBIT)10.55112.51513.95411.10811.233
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri17.30518.62517.21719.44919.416
Veltufé frá rekstri14.85315.08016.83014.27515.727
Kennitölur
Eiginfjárhlutfall39,5%43,7%46,8%47,1%47,4%
Veltufjárhlutfall*0,81,01,11,00,9
*án álafleiðu