22. febrúar 2022

Víðtækt rafmagnsleysi vegna óveðurs

Víðtækt rafmagnsleysi vegna óveðurs
Töluvert er um skemmdir á rafdreifikerfi Veitna af völdum óveðursins sem nú gengur yfir landið. Rafmagnsstaurar hafa víða brotnað, línur slitnað auk þess sem ísing safnast upp á þeim. Nokkuð víðtækt rafmagnsleysi hefur fylgt en veður hamlar viðgerðum. Vinnuflokkar eru að kanna stöðuna og að hefja viðgerðir þar sem slíkt er hægt. Aðstæður eru erfiðar og ekki vitað hversu langan tíma tekur að koma rafmagni aftur á. Ekki er hægt að flytja varaafl milli staða fyrr en veðrinu slotar.