1. desember 2020

Viðbragðsáætlun hitaveitu virkjuð vegna kuldakasts

Viðbragðsáætlun hitaveitu virkjuð vegna kuldakasts
Í ljósi þess að næstu daga stefnir í eitt mesta kuldakast á suðvesturhorni landsins síðan árið 2013 hafa Veitur virkjað viðbragðsáætlun í rekstri hitaveitunnar. Sú áætlun gengur meðal annars út á að hvetja fólk til þess að fara sparlega með heita vatnið svo allir hafi nægt vatn til húshitunar.  Sé tekið mið af spálíkönum, sem nýta veðurspár til að áætla notkun, er útlit fyrir að hitaveitan á höfuðborgarsvæðinu fari að þolmörkum á föstudag og fram yfir helgi.