12. desember 2022

Vetrarstillur auka styrk brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu

Vetrarstillur auka styrk brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu

Í hádeginu í dag fór styrkur brennisteinsvetnis yfir sólarhringsmörk í Norðlingaholti. Spáð er austanátt og froststillum á höfuðborgarsvæðinu fram á laugardag. Við slíkar aðstæður versna loftgæði almennt. Líkur eru á auknum styrk brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu við þessar veðurfarsaðstæður því það dregur úr dreifingu þess með gufunni frá virkjunum á Hengilssvæðinu og það slæðist frekar með jörðu.

 

Aukið hefur verið við hreinsun og niðurdælingu brennisteinsvetnis frá Hellisheiðarvirkjun. Nánari upplýsingar um brennisteinsvetni tengt jarðhitanýtingu á Hengilssvæðinu, þar á meðal um árangur af niðurdælingu þess í jarðlög eru hér.