28. nóvember 2022
Vetrarstillur auka líkur á meiri styrk brennisteinsvetnis

Í kvöld og í nótt er spáð austanátt og froststillum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta eru afar sérstakar aðstæður en ágætt að hafa í huga að við slíkar aðstæður versna loftgæði almennt. Líkur eru því á auknum styrk brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu því það dregur úr dreifingu þess með gufunni frá virkjunum á Hengilssvæðinu og það slæðist frekar með jörðu. Búist er við að aðstæður breytist í fyrramálið en þá er aftur minni hætta á auknum styrk.
Aukið hefur verið við hreinsun og niðurdælingu brennisteinsvetnis frá Hellisheiðarvirkjun.