4. nóvember 2025
Verndum vatnið – Börnin þróa Icewater fræðsluna með okkur

Elliðaárstöð leggur mikið upp úr því að vera í virku samtali við gesti. Nú erum við að þróa nýja fræðsluheimsókn sem ber heitið Verndum vatnið og er hluti af ICEWATER-verkefninu sem er stórt samstarfsverkefni á Íslandi sem miðar að því að auka gæði vatns á Íslandi. Við erum svo lánsöm að við þróun fræðslunnar fáum... Read more »
Elliðaárstöð leggur mikið upp úr því að vera í virku samtali við gesti. Nú erum við að þróa nýja fræðsluheimsókn sem ber heitið Verndum vatnið og er hluti af ICEWATER-verkefninu sem er stórt samstarfsverkefni á Íslandi sem miðar að því að auka gæði vatns á Íslandi. Við erum svo lánsöm að við þróun fræðslunnar fáum við liðsinni frá nemendum og kennurum í Barnaskóla Hjallastefnunnar Garðabæ en allir krakkar í skólanum fara í skemmtilega vísindasmiðju þar sem meðal annars er fjallað um vatn. Það var því tilvalið að fá þau í samstarf og nú þegar hafa tveir hópar af sex komið í heimsókn.