12. desember 2019
Veitur senda aðstoð norður í land

Veitur hafa sent liðsauka norður í land þar sem RARIK og Landsnet vinna hörðum höndum við að koma flutningi og dreifingu rafmagns í samt lag eftir óveðrið sem geysað hefur undanfarna daga.
Í nótt var ekið af stað með tvær varaaflsstöðvar en þær framleiða rafmagn og verða tengdar inn á rafdreifikerfið á Dalvík. Í morgun fór svo okkar vanasta loftínufólk norður. Þau munu aðstoða við að koma Dalvíkurlínu 1 í rekstur og þannig koma rafmagninu á Dalvík í lag.