3. apríl 2023

Vegna Andakílsárvirkjunar

Vegna Andakílsárvirkjunar

Á fundi stjórnar ON þann 23. janúar sl. var bókað það samdóma álit stjórnarinnar að Andakílsárvirkjun hafi öll þau leyfi sem þarf til reksturs og að svo hafi verið frá upphafi. Álit stjórnar er í samræmi við nýútkomið minnisblað frá Orkustofnun, dags. 15. febrúar sl., sem telur ótvírætt að virkjunin hafi leyfi til reksturs. Taldi stjórn rétt að koma skoðun sinni áleiðis þar sem umræða hafi verið opinberlega um að slíkt leyfi væri í raun ekki til staðar.