27. október 2025
Vatnsberar fá samastað í Elliðaárstöð

Bæst hefur í safnkost Elliðaárstöðvar þar sem útskurðarverk eftir Ásmund Guðmundsson barst að gjöf. Ásmundur Guðmundsson fæddist árið 1929 og starfaði sem skipstjóri allt til ársins 1975. Hann fékk þá alvarlegt heilablóðfall aðeins 46 ára að aldri. Við áfallið missti Ásmundur talmálið sem og máttinn í hægri hluta líkamans. Hann náði með miklum viljastyrk að... Read more »
Bæst hefur í safnkost Elliðaárstöðvar þar sem útskurðarverk eftir Ásmund Guðmundsson barst að gjöf. Ásmundur Guðmundsson fæddist árið 1929 og starfaði sem skipstjóri allt til ársins 1975. Hann fékk þá alvarlegt heilablóðfall aðeins 46 ára að aldri. Við áfallið missti Ásmundur talmálið sem og máttinn í hægri hluta líkamans. Hann náði með miklum viljastyrk að þjálfa upp vinstri höndina, sem hann notaði til vinnu og athafna, m.a. til þess að skera út og mála. Hann heillaðist af útskurðarlistinni og skar út fjölda verka á ferlinum.
Verk Ásmundar bera vott um mikla lagni og tilfinningu fyrir lögun og formi. Myndefnið sótti hann í íslenska náttúru og hefðbundin störf íslenskrar alþýðu fyrri tíma. Veitum var gefin þessi verk og þótti viðeigandi að þau fengju stað í Elliðaárstöð þar sem fyrsta vatnstökusvæði borgarinnar var einmitt í Elliðaánum.
Ásmundur lést árið 2011 en skildi eftir sig falleg verk og sögu dugmikils manns. Nafni hans Ásmundur Bjarnason og Einar Eysteinn afhentu Elliðaárstöð þessi fallegu útskurðarverk.