Utanríkisráðherrar Benelux-ríkjanna heimsóttu Hellisheiði

© geinar
Utanríkisráðherrar Belgíu, Hollands og Lúxemborgar heimsóttu Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar í gærmorgun þar sem þeir kynntu sér nýtingu jarðhita á Íslandi og Carbfix-tæknina til varanlegrar bindingar koldíoxíðs í bergi.
Maxime Prévot, utanríkisráðherra Belgíu, Tom Berendsen, utanríkisráðherra Hollands, og Xavier Bettel, utanríkisráðherra Lúxemborgar, eru staddir hér á landi í tengslum við fund þeirra með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, tók á móti hópnum á Hellisheiði og kynnti starfsemi Orkuveitunnar og fyrirtækja hennar.
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, fjallaði um jarðhitanýtingu á Íslandi og starfsemi ON á Hellisheiði. Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, kynnti síðan Carbfix-tæknina.
Að kynningum loknum fóru ráðherrarnir í vettvangsferð á Hellisheiði með Eddu Sif og kynntu sér starfsemina nánar.
Heimsóknin var hluti af dagskrá utanríkisráðherranna hér á landi, en auk Hellisheiðar áttu þeir meðal annars fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.







