19. ágúst 2025

Ungir plötusnúðar í gamalli Rafstöð

Ungir plötusnúðar í gamalli Rafstöð
Það var sannkölluð sumarhátíð í Elliðaárstöð þegar ungir plötusnúðar spreyttu sig við að þeyta skífum í Rafstöðinni. Elliðaárstöð og Hitt húsið tóku höndum saman og héldu tónlistarveislu í gömlu Rafstöðinni. Sumarleikir, popp, candýfloss og gos voru meðal annars á boðstólnum sem féll í kramið hjá gestum. Ungmennin þeyttu skífum en þau höfðu klárað DJ námskeið... Read more »

Það var sannkölluð sumarhátíð í Elliðaárstöð þegar ungir plötusnúðar spreyttu sig við að þeyta skífum í Rafstöðinni. Elliðaárstöð og Hitt húsið tóku höndum saman og héldu tónlistarveislu í gömlu Rafstöðinni. Sumarleikir, popp, candýfloss og gos voru meðal annars á boðstólnum sem féll í kramið hjá gestum. Ungmennin þeyttu skífum en þau höfðu klárað DJ námskeið hjá Hinu húsinu og sýndu afraksturinn á þessum einstaka viðburði. Það er alltaf ánægjulegt að sjá kraft, sköpunargleði og frumkvæði ungs fólks blómstra í svona verkefnum og ekki síður að sjá samfélagið taka þátt! Takk fyrir komuna.