Undirbúningsframkvæmdir vegna borana á rannsóknarholum í Meitlum hafnar
Orkuveitan hefur hafið undirbúningsframkvæmdir vegna borana á fyrirhuguðum rannsóknarholum í Meitlum, innan sveitarfélagsins Ölfuss. Framkvæmdirnar fela í sér lagningu vegslóða og borteiga. Áætlað er að fyrsta rannsóknarholan verði boruð haustið 2025 en borun verður í höndum fyrirtækisins North Tech Drilling.
„Við höfum sett okkur skýr markmið um að vera aflvaki sjálfbærrar framtíðar og leiðandi í orkuskiptum. Þessar rannsóknir eru hluti af þeirri vegferð og miða að því að tryggja áframhaldandi orkuöflun til að mæta ört vaxandi þörf samfélagsins og stuðla að ábyrgri auðlindanýtingu í sátt við umhverfið. Við hlökkum til samstarfsins og þetta verkefni er skýr vísbending um að við ætlum að sækja fram í orkuöflun og tryggja nægt framboð af sjálfbærri orku til framtíðar,“ segir Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni.
Tilgangur framkvæmdanna er að kanna hvort nýtanlegan jarðhita sé að finna á svæðum þar sem yfirborðsrannsóknum er lokið, innan fyrirliggjandi nýtingarleyfis Orkuveitunnar.
Með rannsóknarborunum fæst heildræn mynd af stærð og eðli auðlindarinnar og vísbendingar um hvort hún henti til orkunýtingar.