21. október 2026

Til hamingju með Hellisheiðarvirkjun

Loading...
Tuttugu ár eru liðin frá því að Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar var formlega gangsett 21. október 2006. Orkuveitan, móðurfélag ON, byggði virkjunina og starfsemin var byggð upp í áföngum. Árið 2006, hófst rafmagnsframleiðsla, og árið 2010 var varmastöð virkjunarinnar gangsett til að framleiða heitt vatn. Þegar Orka náttúrunnar tók til starfa árið 2014 varð rekstur Hellisheiðarvirkjunar hluti af starfsemi ON. 

Í dag er uppsett afl Hellisheiðarvirkjunar 303 megavött og rafmagnið nýtist heimilum og atvinnulífi um allt land. Virkjunin getur framleitt 950 l/sek af heitu vatni og eftir áramót verður framleiðslugetan komin í 1500 l/sek. Heita vatnið fer inn á hitaveitukerfi Veitna og hitar heimili, skóla og vinnustaði á höfuðborgarsvæðinu. Það heldur líka sundlaugunum okkar heitum.

„Hellisheiðarvirkjun hefur í tuttugu ár verið mikilvæg undirstaða lífsgæða og verðmætasköpunar á Íslandi. Samfélagið hefur vaxið og breyst á þessum tíma og nú vinnum við að því að auka framleiðslu á heitu vatni til að mæta þörfum þess til framtíðar. Slík uppbygging tekur tíma og krefst þess að við hugsum mörg ár fram í tímann,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

Frá orkuframleiðslu til fjölbreyttrar nýsköpunar

Við Hellisheiðarvirkjun hefur jafnframt byggst upp Jarðhitagarður ON, þar sem fyrirtæki nýta raforku, varma, vatn og nálægð við virkjunina til fjölbreyttrar starfsemi. Þar eru meðal annars ræktaðir smáþörungar og unnið að föngun koldíoxíðs úr andrúmslofti.

Virkjunin hefur einnig verið vettvangur þróunar lausna til að draga úr losun frá jarðhitanýtingu. Þróun Carbfix-tækninnar og opnun lofthreinsistöðvarinnar Steingerðar árið 2025 hafa gert kleift að fanga koldíoxíð og brennisteinsvetni úr jarðhitagasinu og binda í bergi.

Til framtíðar gætu rannsóknir á ofurheitum jarðhita opnað frekari möguleika. Með djúpborunarverkefninu IDDP-3 á Nesjavöllum, sem Orkuveitan leiðir, er unnið að þróun leiða til að nýta jarðhita við hærra hitastig og þrýsting en í hefðbundnum vinnsluholum. Þekking og tækni sem verkefnið skilar gætu síðar nýst við Hellisheiðarvirkjun.

„Á bak við þessa tuttugu ára sögu er stór hópur fólks sem hefur lagt fram þekkingu sína, reynslu og krafta. Starfsfólk ON, verktakar og samstarfsaðilar sinna á hverjum degi þeim verkefnum sem gera okkur kleift að treysta á rafmagnið og heita vatnið. Þessu góða fólki, bæði fyrr og nú, ber að þakka sérstaklega á þessum tímamótum,“ segir Árni Hrannar.

Opið hús laugardaginn 24. október

Í tilefni afmælisins býður Orka náttúrunnar til opins húss í Hellisheiðarvirkjun laugardaginn 24. október kl. 13–15. Öll eru velkomin að kynna sér starfsemina og þiggja kaffi og köku.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá uppbyggingu virkjunarinnar og setningarhátíð hennar.

Ljósmyndari: Sigfús Már Pétursson

Ljósmyndari: Sigfús Már Pétursson