24. janúar 2020
Þjónustuöryggi rafveitu, hitaveitu og vatnsveitu gott árið 2019

Frammistaða Veitna í afhendingu á rafmagni, heitu og köldu vatni var prýðileg árið 2019. Áreiðanleiki veituþjónustu er mældur með því að deila samanlögðu umfangi þeirra fyrirvaralausu truflana sem verða á hverju ári niður á hvern notanda. Fylgst hefur verið með afhendingaröryggi rafmagns um árabil en Veitur hafa þróað verklag til að mæla áreiðanleika þjónustu annarra veitukerfa. Áreiðanleikastuðull upp á 100% þýðir að engin fyrirvaralaus truflun varð á rekstri viðkomandi veitu.