8. mars 2022

Þetta kemur allt með kalda vatninu

Þetta kemur allt með kalda vatninu
Út er komin barnabókin Miðbæjarrottan - Þetta kemur allt með kalda vatninu eftir Auði Þórhallsdóttur. Sagan fjallar um miðbæjarrottuna Rannveigu sem lendir í því einn morguninn að það er vatnslaust og án vatns getur hún ekki þvegið sér, sturtað niður úr klósettinu eða hellt upp á kaffi. Hún fer á stúfana til að leysa þetta vandamál og kemst að því hversu mikil forréttindi það eru að hafa rennandi vatn í krananum.  Bókin bendir á hversu dýrmæt auðlind vatnið er en segir okkur einnig frá lífinu í Reykjavík fyrir daga vatnsveitunnar.