6. janúar 2023
Styrkur brennisteinsvetnis yfir tilkynningarmörkum

Dagana 5-6. janúar fór styrkur brennisteinsvetnis yfir tilkynningarmörk á iðnaðarsvæðinu við Nesjavallavirkjun og er styrkur enn yfir mörkum (100qg/m3). Er þetta vegna kulda og stillu á svæðinu. Við þær aðstæður fellur Brennisteinsvetnið frá virkjuninni niður og blæs ekki burt.
Með kvöldinu eykst vindstyrkur á svæðinu og því ætti styrkur Brennisteinsvetnis að falla undir viðmiðunarmörk á næstu klukkustundum.
Vert er að taka fram að Nesjavallavirkjun er á skilgreindu iðnaðarsvæði og þessi toppur er vel innan marka (10%) fyrir toppgildi í reglugerð sem gildir um iðnaðarsvæði.