5. júní 2025

Strákar og stálp í háskóla — innblástur fyrir framtíðina

Strákar og stálp í háskóla — innblástur fyrir framtíðina

Í gær tók Orkuveitan og dótturfélög: Orka náttúrunnar, Veitur, Ljósleiðarinn og Carbfix, auk Jarðhitasýningarinnar og Elliðaárstöðvar, á móti stórskemmtilegum hópi af strákum og stálpum úr 9. bekk á höfuðborgarsvæðinu í fyrsta skipti á viðburðinum Strákar og stálp í háskóla. Dagurinn var fullur af fræðslu, spjalli og innblæstri frá háskólakennurum, nemendum og atvinnulífinu.

Markmiðið var meðal annars að vekja athygli á þeim fjölbreyttu möguleikum sem háskólanám býður upp á, og að bregðast við þeirri þróun að færri strákar sæki sér menntun á háskólastigi. Við þökkum öllum sem komu og hlökkum til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér hjá þessum flottu krökkum!

2025-06-strákar og stálp í Háskóla-02.jpg
2025-06-strákar og stálp í Háskóla-05.jpg
2025-06-strákar og stálp í Háskóla-11.jpg
2025-06-strákar og stálp í Háskóla-08.jpg
2025-06-strákar og stálp í Háskóla-03.jpg
2025-06-strákar og stálp í Háskóla-10.jpg
2025-06-strákar og stálp í Háskóla-06.jpg
2025-06-strákar og stálp í Háskóla-09.jpg