22. júlí 2026

Stór áfangi í þróun ofurheits jarðhita: Samningur undirritaður um fyrstu rannsóknarholuna

Loading...

© Einar Örn Jónsson

Orkuveitan hefur undirritað samning við Jarðboranir hf. um borun fyrstu rannsóknarholunnar í þriðja áfanga rannsóknarverkefnisins IDDP (Iceland Deep Drilling Project). Með undirrituninni er stórum áfanga náð í undirbúningi verkefnisins og stefnt er að því að hefja borun síðar á þessu ári.

Leitað nýrra leiða til að nýta ofurheitan jarðhita

IDDP-3 er metnaðarfullt rannsóknar- og þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að hagnýta ofurheitan jarðhita, þar sem hitastig og þrýstingur eru mun hærri en í hefðbundnum vinnsluholum. Takist það gæti hver hola skilað margfalt meiri orku en nú er mögulegt og þannig aukið skilvirkni og sjálfbærni jarðhitavinnslu til framtíðar.

Lykilskref í mikilvægum rannsóknaráfanga

Þróun á þessu sviði hefur staðið yfir á Íslandi í meira en aldarfjórðung undir merkjum Iceland Deep Drilling Project (IDDP), í samstarfi Orkuveitunnar, Landsvirkjunar, HS Orku, Orkustofnunar, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis auk fjölmargra innlendra og erlendra samstarfsaðila. Tvær djúpborunarholur hafa þegar verið boraðar innan verkefnisins og lagt mikilvægan grunn að þeirri þekkingu sem nú er byggt á. IDDP-3 er þriðji áfangi verkefnisins og verður fyrsta rannsóknarholan í þeim áfanga boruð á Nesjavöllum.

„Undirritun samningsins markar upphaf framkvæmda við einn metnaðarfyllsta rannsóknaráfanga í sögu íslenskrar jarðhitanýtingar” segir Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni. “Borun IDDP-3 er lykilskref í djúpnýtingaráætlun Orkuveitunnar og það gleður okkur fá Jarðboranir til samstarfs”.

Styrkir stöðu Íslands á sviði jarðhita

Á síðustu árum hefur áhugi á ofurheitum jarðhita aukist verulega á alþjóðavettvangi. Samhliða því hafa orðið framfarir í bor-, mæli- og efnistækni sem auka líkur á að unnt verði að nýta slíkar auðlindir með öruggum og hagkvæmum hætti. Rannsóknir á þessu sviði eru því ekki aðeins mikilvægar fyrir Ísland heldur geta þær haft áhrif á þróun endurnýjanlegrar orku víða um heim. Orkuveitan, í alþjóðlegu samstarfi við 17 innlenda og erlenda aðila sem kallast SHiFT, hlaut nýverið 10 milljóna evra styrk úr Horizon Europe áætluninni til rannsókna og nýsköpunar á sviði ofurheits jarðhita.

Verkefnið styður við stefnu Orkuveitunnar um að þróa nýja orkukosti, efla orkuöryggi til framtíðar og tryggja sjálfbæra nýtingu auðlinda. Um leið styrkir það stöðu Íslands sem leiðandi þjóðar á sviði jarðhitarannsókna og skapar ný tækifæri til alþjóðlegs samstarfs og nýsköpunar.