Þriðja í aðventu fylgir að sjálfsögðu enn önnur tilraun sem skemmtilegt er að prófa. Stjörnuhrap Það sem þarf: rör, límband, blaðra, þráður, þvottaklemma og eitthvað skemmtilegt til að skreyta blöðruna. Þetta þarf ekki að vera flókið til að vera skemmtilegt! Það sem þarf að gera: hengið þráð á milli tveggja hluta, það má vera eins langt og...
Read more »Þriðja í aðventu fylgir að sjálfsögðu enn önnur tilraun sem skemmtilegt er að prófa.
Stjörnuhrap
Það sem þarf: rör, límband, blaðra, þráður, þvottaklemma og eitthvað skemmtilegt til að skreyta blöðruna. Þetta þarf ekki að vera flókið til að vera skemmtilegt!
Það sem þarf að gera: hengið þráð á milli tveggja hluta, það má vera eins langt og hentar en ekki í halla, svo þarf að þræða rörið upp á þráðinn. Næst þarf að blása blöðruna upp, setja þvottaklemmu á stútinn til að loka fyrir og svo er skemmtilegt að skreyta blöðruna! Til dæmis gæti blaðran verið rafmagn að fara eftir rafmagnslínu, kúkur að ferðast eftir fráveitulögn, vatnsdropi í lögn. Hægt er að gera tilraunina jólalegri með því að klippa út stjörnu sem verður þá stjörnuhrap eða jólakött sem stekkur af stað. Að lokum þarf að festa blöðruna á rörið með límbandi, losa um þvottaklemmuna og þá þeytist blaðran áfram eftir bandinu. Fylgist með hversu langt hún kemst og prófið aftur, blásið þá annað hvort meira eða minna í blöðruna og sjáið hvað breytist!