29. maí 2025
Stelpum og stálpum kynnt fyrir tæknigreinum

Í Elliðaárstöð er lögð mikil áhersla á að gera tækni-, iðn- og verkgreinum hátt undir höfði fyrir sem fjölbreyttasta hóp nemenda. Þann 23. maí fór fram Stelpur, stálp og tækni í Elliðaárstöð en viðburðurinn er hluti af alþjóðlega verkefninu Girls in ICT sem Háskólinn í Reykjavík heldur utan um á Íslandi. Boðið var upp á líflega... Read more »
Í Elliðaárstöð er lögð mikil áhersla á að gera tækni-, iðn- og verkgreinum hátt undir höfði fyrir sem fjölbreyttasta hóp nemenda. Þann 23. maí fór fram Stelpur, stálp og tækni í Elliðaárstöð en viðburðurinn er hluti af alþjóðlega verkefninu Girls in ICT sem Háskólinn í Reykjavík heldur utan um á Íslandi.
Boðið var upp á líflega orkuhringekju þar sem krakkarnir fengu að prófa:
- Að vera vísindakona þar sem gerðar voru tilraunir og smásjárskoðun með Carbfix og Rannsóknum og nýsköpun.
- Verkfræðiþraut ON þar sem reynt var á hugvitið og byggt var turn með spagettí og sykurpúðum.
- Þegar við erum tengd. Krakkarnir fengu að kynnast mælaskiptum og pípulögnum hjá Veitum
- Krakkarnir splæstu ljósleiðara með Ljósleiðaranum og tóku mynd með forritun.