16. janúar 2020

Staðall fyrir rafræn reikningsviðskipti

Staðall fyrir rafræn reikningsviðskipti
Veitur munu á næstunni taka upp EN16931 staðalinn fyrir rafræn reikningsviðskipti. Staðallinn er samevrópskt verkefni og innleiðing hans hjá Veitum, Reykjavíkurborg, nokkrum sveitarfélögum og stofnunum hér á landi er styrkt af Evrópusambandinu. Markmiðið með staðlinum er að hægt verði að senda rafræn viðskiptaskeyti á milli allra aðila, yfir landamæri og án tæknilegra hindrana. Gert er ráð fyrir að staðlinum fylgi aukin sjálfvirkni í bókun reikninga þar sem þeir munu allir innihalda annað hvort pantananúmer eða tilvísunarnúmer frá kaupanda.