12. nóvember 2019

Sölu tveggja veitna í Bláskógabyggð frestað

Sölu tveggja veitna í Bláskógabyggð frestað
Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta sölu hitaveitu og vatnsveitu Veitna í Bláskógabyggð. Við yfirferð á sölugögnum, sem áhugasamir kaupendur gátu fengið afhent hjá Veitum, kom í ljós skekkja í upplýsingum. Því hefur verið ákveðið að afturkalla núverandi gögn og að fresta sölu veitnanna um hríð eða þar til sölugögn hafa verið yfirfarin og leiðrétt.  Vatnsveita og hitaveita Veitna í Bláskógabyggð voru auglýstar til sölu í byrjun nóvember. Um er að ræða veitur er einkum þjóna sumarhúsum á svæðinu og eru þær meðal minnstu rekstrareininga fyrirtækisins.