Annar í aðventu er runninn upp og því kominn tími á nýja jóla-vísinda-tilraun sem er tilvalin að prófa með fjölskyldu eða vinum. Snjókorn flögra! Það sem þarf er: reglustika úr plasti (eða eitthvað langt prik úr plasti), ullarbútur (getur verið peysa, trefill eða bara hvað sem er úr ull), klósettpappír og skæri. Allt eitthvað sem...
Read more »Annar í aðventu er runninn upp og því kominn tími á nýja jóla-vísinda-tilraun sem er tilvalin að prófa með fjölskyldu eða vinum.
Snjókorn flögra!
Það sem þarf er: reglustika úr plasti (eða eitthvað langt prik úr plasti), ullarbútur (getur verið peysa, trefill eða bara hvað sem er úr ull), klósettpappír og skæri. Allt eitthvað sem þið ættuð að geta fundið heima!
Það sem þarf að gera: fyrst þarf að taka lög klósettpappírsins í sundur til að hafa þunna pappírsörk til að vinna með og eftir það er það sköpunarkrafturinn sem tekur við. Til dæmis er hægt að búa til snjókorn með því að brjóta pappírinn í tvennt tvisvar, síðan horn í horn og þá er hægt að klippa út form úr þeim þríhyrningi. Þegar það er tekið í sundur myndast fagurt snjókorn. Næst þarf að nudda ullinni við reglustikuna (hlustið þið hvort þið heyrið eitthvað hljóð). Næst er hægt að leggja prikið við snjókornið og sjá snjókornið flögra!