1. október 2021

Sérhannað hús fyrir veiturekstur á Suðurlandi

Sérhannað hús fyrir veiturekstur á Suðurlandi
Veitur hafa tekið í notkun nýja aðstöðu fyrir umfangsmikla starfsemi sína á Suðurlandi. Nýja byggingin, sem er í Vorsabæ 9 í Hveragerði, gjörbyltir aðstöðu starfsfólks sem býr og starfar á Suðurlandi enda er það sérhannað fyrir veiturekstur.  Heildarstærð hússins er er 446 m2  sem skiptist í skrifstofuhluta og verkstæðishluta, allt á einni hæð.  Í skrifstofuhlutanum eru skrifstofur, vinnuherbergi  og fundaraðstaða auk kaffiaðstöðu fyrir starfsfólk og búningsherbergja.  Verkstæðishlutinn skiptist í lager og almennt verkstæði með loftræstiklefa, tæknirými og inntaksrýmum.