29. nóvember 2019
PFS sektar Símann aftur fyrir ítrekað brot á lögum

Síminn braut lög með því að beina áskrifendum að Sjónvarpi Símans í viðskipti við eigið fjarskiptatæki. Þetta er niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) og er ákvörðunin birt á vef stofnunarinnar í dag. Þetta er í annað skipti að PFS sektar fyrir sama brotið og eins og í fyrra skiptið nemur sektin níu milljónum króna. Hámarkssekt er 10 milljónir.