Orkuveitan | Útboð á grænum skuldabréfum í dag, 8. október

Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum í dag, miðvikudaginn 8. október 2025. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR031033 GB, OR0280845 GB og OR180255.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 9.950 m.kr. í flokknum.

OR280845 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 28. ágúst 2045. Flokkurinn ber 3,70% fasta vexti og er uppgreiðanlegur árið 2037. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 9.000 m.kr. í flokknum.

OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 39.421 m.kr. í flokknum.

Ekki verður tekið við lægri tilboðum í útboðinu en að fjárhæð 20.000.000 kr. í hverjum flokki fyrir sig og er útboðið því undanþegið gerð lýsingar í samræmi við d-lið 4. mgr. 1. gr. í reglugerð (ESB) nr. 2017/1129, sbr. 2. gr. laga nr. 14/2020 um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 miðvikudaginn 8. október 2025. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 15. október 2025.

Nánari upplýsingar veita:

Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is