26. október 2026

Orkuveitan: Tilkynning frá Orkuveitunni

Loading...

Að fengnu umboði stjórnar Orkuveitunnar samþykkti hluthafafundur Ljósleiðarans ehf. í dag að veita umboð til aðgerða sem leitt geta til breytts eignarhalds á Ljósleiðaranum. Samþykkt fundarins var með fyrirvara um staðfestingu eigenda Orkuveitunnar. Ljósleiðarinn, sem nú er að öllu leyti í eigu Orkuveitunnar, er innviðafyrirtæki í gagnaflutningum og þjónar fjarskiptafyrirtækjum, heimilum og atvinnulífi víða um land. Umboðið, hljóti það staðfestingu eigenda, verður í höndum forstjóra Orkuveitunnar sem fer með hlutafé Orkuveitunnar í Ljósleiðaranum.

Samþykktin felur í sér víðtækt umboð til aðgerða sem allar hafa það markmið að hámarka verðmæti Ljósleiðarans fyrir eigendur, hvort sem niðurstaðan verður áframhaldandi eignarhald Orkuveitunnar, nýir fjárfestar eignist félagið að hluta eða í heild eða möguleg skráning þess á markað.

Árið 2023 veittu eigendur Orkuveitunnar – Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð – tímabundið umboð til aukningar hlutafjár og sölu nýrra hluta. Þrátt fyrir áhuga fjárfesta á félaginu leiddi ferlið ekki til samninga en sýndi fram á ýmis tækifæri á markaðnum fyrir Ljósleiðarann. Eigendum Orkuveitunnar hefur verið haldið upplýstum um þróun mála frá því fyrra umboð rann út. Eigendafundur Orkuveitunnar, skipaður fulltrúum sveitarfélaganna þriggja, þarf að staðfesta áformin[ÞG1] . Áherslur um undirbúning að sölu Ljósleiðarans er að finna í samstarfssáttmála meirihlutaflokkanna í Reykjavík frá í vor.

Ljósleiðarinn hóf formlega starfsemi árið 2007 sem Gagnaveita Reykjavíkur og hefur byggt upp víðfeðmt net ljósleiðaralagna til heimila og fyrirtækja. Með þessu hefur fyrirtækið verið undirstaða margvíslegrar samkeppni á íslenskum fjarskiptamarkaði. Ör stafræn þróun samfélagsins skapar félaginu frekari vaxtartækifæri á markaði fyrir örugga og afkastamikla gagnaflutninga.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með því ferli sem fram undan er, fáist til þess umboð frá eigendum Orkuveitunnar.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar:

„Það er hugsanlega enginn angi atvinnulífsins jafn kvikur og fjarskiptamarkaðurinn. Við sjáum það hér á landi og um allan heim. Markmiðið er að efla Ljósleiðarann til að standa vörð um verðmæti; verðmætin í sjálfu fyrirtækinu fyrir eigendur þess og verðmætin fyrir almenning í þeirri þjónustu sem það hefur verið í fararbroddi um að veita. Umboðið sem við erum að biðja um snýst um að fá fjölbreytt verkfæri til að sækja að þessum markmiðum með opnum huga án þess að niðurstaðan sé fyrirfram gefin.“

Tengiliður:

Sævar Freyr Þráinsson

forstjóri Orkuveitunnar

Saevar.Freyr.Thrainsson@orkuveitan.is