28. maí 2026

Orkuveitan styrkir öryggis- og viðbúnaðarmál

Orkuveitan styrkir öryggis- og viðbúnaðarmál

Orkuveitan hefur gert breytingar á skipulagi öryggis- og viðbúnaðarmála með það að markmiði að styrkja enn frekar getu félagsins til að mæta auknum kröfum, fjölþáttaógnum og breyttu öryggisumhverfi samfélagsins.

Hörður Pétursson hefur tekið við hlutverki öryggisstjóra Orkuveitunnar og mun leiða öryggissvið móðurfélagsins og Veitna ásamt neyðarstjórn. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin öryggisstjóri ON og Ljósleiðarans.

Með breytingunum er Orkuveitan að styrkja enn frekar öryggis- og viðbúnaðargetu á tímum þar sem innviðir samfélagsins gegna sífellt mikilvægara hlutverki.

Reynsluboltar í öryggismálum

Hörður hefur víðtæka reynslu af öryggis- og viðbragðsmálum en hann hefur meðal annars starfað sem öryggisstjóri hjá Siemens Wind Power, gegnt stjórnunarhlutverkum hjá Steypustöðinni og starfað hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Slökkviliði Keflavíkurflugvallar. Þá hefur hann einnig reynslu af verkefnum á vegum friðargæslunnar í Afganistan.

Þóra Kristín hefur um árabil starfað á sviði almannavarna og neyðarstjórnunar meðal annars hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Verkfræðistofunni EFLU og innanríkisráðuneytinu. Hún gegndi lykilhlutverki í samhæfingarstöð almannavarna í Covid-19 faraldrinum og hefur leitt fjölmörg verkefni tengd samfélagsöryggi og viðbúnaðarmálum.

Öflugt og nútímalegt öryggisumhverfi

„Öryggis- og viðbúnaðarmál verða sífellt mikilvægari þáttur í starfsemi innviðafyrirtækja. Við erum því afar ánægð að fá til okkar tvo reynslumikla leiðtoga með djúpa þekkingu á öryggismenningu, neyðarstjórnun og samfélagsöryggi. Reynsla þeirra mun styrkja Orkuveituna enn frekar og styðja við áframhaldandi uppbyggingu öflugs og nútímalegs öryggisumhverfis innan Orkuveitunnar,“ segir Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastýra mannauðs og tækni hjá Orkuveitunni.

Orkuveitan hefur um árabil lagt ríka áherslu á öryggi starfsfólks, rekstrarsamfellu og öflugt viðbragðsumhverfi. Með breytingunum verður áfram unnið markvisst að því að þróa starfsemina í takt við nýjar áskoranir, auknar kröfur og bestu aðferðir á sviði öryggis- og viðbúnaðarmála.

Áhersla verður meðal annars lögð á áframhaldandi þróun neyðarstjórnunar, aukið áfallþol innviða, fræðslu og þjálfun starfsfólks og markvissa uppbyggingu öryggismenningar.