4. september 2026

Orkuveitan og Jafnvægisvogin taka höndum saman um jafnrétti

Loading...

© Unnur

Orkuveitan og Jafnvægisvogin hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning með það að markmiði að stuðla að auknu kynjajafnvægi í íslensku atvinnulífi. Samstarfið er jafnframt gott tilefni til að líta yfir farinn veg en í ár eru 30 ár síðan fyrsta jafnréttisáætlunin var sett hjá einum af forverum Orkuveitunnar.

Jafnréttisstarf Orkuveitunnar á sér langa sögu. Árið 1996 setti Rafmagnsveita Reykjavíkur, einn af forverum Orkuveitunnar, sér jafnréttisáætlun. Þar var meðal annars stefnt að því að fjölga konum í ábyrgðarstöðum, vinna gegn kynbundnum launamun og kynna tækni- og iðnstörf sérstaklega fyrir konum.

Ári síðar var jafnréttishópur stofnaður innan Rafmagnsveitunnar og staða jafnréttismála kortlögð. Gripið var til aðgerða til að leiðrétta launamun og jafnframt hófst veiting námsstyrkja til kvenna í iðn- og tækninámi.

Þegar Orkuveita Reykjavíkur var stofnuð árið 1999 tók jafnréttisnefnd þegar til starfa og jafnréttismál hafa síðan verið órjúfanlegur hluti af þróun vinnustaðarins.

Jafnrétti er ákvörðun

Árið 2011 var mörkuð skýr stefna um að jafna kynjahlutföll í stjórnunarstöðum og eyða óútskýrðum kynbundnum launamun. Árið 2017 hafði sá munur verið minnkaður niður fyrir 1% og hefur haldist innan þeirra marka síðan.

Orkuveitan hefur jafnframt haldið áfram að þróa jafnréttisstarfið. Á síðustu árum hefur meðal annars verið lögð aukin áhersla á að auðvelda starfsfólki að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf, skapa inngildandi vinnuumhverfi og jafna tækifæri fólks til starfsþróunar og áhrifa.

OR90025

Jafnrétti gerist ekki af sjálfu sér. Það er ákvörðun sem þarf að fylgja eftir með skýrum markmiðum, markvissum aðgerðum og virkri þátttöku stjórnenda. Orkuveitan hefur unnið lengi og skipulega að jafnréttismálum og náð góðum árangri, en við erum hvergi nærri hætt því alltaf má gera betur. Með samstarfinu við Jafnvægisvogina viljum við miðla reynslu okkar, læra af öðrum og stuðla að hraðari breytingum í íslensku atvinnulífi,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.

Þrjátíu ára vegferð heldur áfram

Samstarfið nú er þannig framhald af vegferð sem hófst formlega fyrir þrjátíu árum. Reynslan hjá Orkuveitunni hefur sýnt að jafnrétti næst ekki með einni aðgerð eða einu átaki heldur með skýrum markmiðum, mælingum, eftirfylgni og stöðugum vilja til að gera betur.

Þótt margt hafi breyst frá árinu 1996 er verkefninu ekki lokið. Orkuveitan ætlar áfram að vera metnaðarfull í jafnréttismálum og leggja sitt af mörkum til þess að sú reynsla og þekking sem orðið hefur til innan fyrirtækisins geti einnig nýst víðar.

Skoða jafnréttistímalínu Orkuveitunnar

Rósa Viggósdóttir verkefnastjóri Jafnvægisvogarinnar, Erna Sigurðardóttir mannauðsleiðtogi Orkuveitunnar, María Skúladóttir markaðsstjóri Deloitte, Darri Johansen ráðgjafi og stefnumótun Pipar/TBWA, Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir framkvæmdastýra Mannauðs og tækni hjá Orkuveitunni. Neðri röð: Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar og Erla Ósk Ásgeirsdóttir formaður Jafnvægisvogarráðs.

Rósa Viggósdóttir verkefnastjóri Jafnvægisvogarinnar, Erna Sigurðardóttir mannauðsleiðtogi Orkuveitunnar, María Skúladóttir markaðsstjóri Deloitte, Darri Johansen ráðgjafi og stefnumótun Pipar/TBWA, Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir framkvæmdastýra Mannauðs og tækni hjá Orkuveitunni. Neðri röð: Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar og Erla Ósk Ásgeirsdóttir formaður Jafnvægisvogarráðs.