Orkuveitan | Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa

Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 8. október 2025. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR031033 GB, OR0280845 GB og OR180255 GB. Samtals bárust tilboð að nafnverði 1.815 m.kr.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 9.950 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.315 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 8,00-8,05%. Tilboðum að fjárhæð 1.315 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 8,05%.

OR280845 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 28. ágúst 2045. Flokkurinn ber 3,70% fasta vexti og er uppgreiðanlegur árið 2037. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 9.000 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 150 m.kr. að nafnvirði, á ávöxtunarkröfunni 3,99%.Tilboðum að fjárhæð 150 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,99%.

OR180255 GB ber fasta 2,60% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 39.421 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 350 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,89-3,92%. Tilboðum að fjárhæð 350 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,92%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@orkuveitan.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is