6. mars 2026

Orkuveitan | Góð afkoma 2025 þrátt fyrir ágjöf

Orkuveitan | Góð afkoma 2025 þrátt fyrir ágjöf

Rekstur Orkuveitunnar (Orkuveita Reykjavíkur) skilaði 11,5 milljarða króna hagnaði á árinu 2025. Það er liðlega tveimur milljörðum betri niðurstaða en árið 2024, þrátt fyrir áfall hjá stórum viðskiptavini og samdrátt í tekjum hitaveitunnar. Milli ára jukust þó rekstrartekjur um 2,5% en rekstrargjöld eingöngu um 1,7%. Fjárfestingar ársins 2025 námu samtals 33,4 milljörðum króna en voru 30,9 milljarðar 2024.

Ársreikningur samstæðu Orkuveitunnar var samþykktur af stjórn í dag. Innan hennar eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix. Áður höfðu ársreikningar dótturfélaga verið samþykktir af viðkomandi stjórnum. Stjórn Orkuveitunnar leggur til að greiddur verði arður vegna ársins að fjárhæð 4,5 milljarðar króna, þó þannig að einn milljarður verði bundinn skilyrðum um hagfellda framvindu óvissuþátta á yfirstandandi ári.

Aukin sjálfbærni samfélaga

„Veltufé frá rekstrinum – og þar með fjárfestingargeta fyrirtækjanna í þágu sjálfbærrar framtíðar –jókst á milli ára,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar. Það var 30,5 milljarðar króna 2025 en 29,1 milljarður árið áður. „Ekki veitir af,“ bætir hann við, „því samkvæmt okkar fjárhagsspá munu fjárfestingar Orkuveitunnar nema 230,5 milljörðum króna til ársloka 2030.“

Á yfirstandandi ári lýkur innleiðingarverkefni snjallmæla hjá Veitum og við fyrirtækinu blasir aukin orkuöflun fyrir hitaveitur, efld vatnsvernd og að mæta vaxandi kröfum til fráveitna.„Jarðhitinn er okkar helsta orkulind,“ bendir Sævar á. „Orka náttúrunnar er að efla sína gufuöflun á Hengilssvæðinu og Orkuveitan sækir fram á nýjum háhita- og lághitasvæðum sem nú eru rannsökuð. Við horfum hinsvegar ekki bara víðar heldur líka dýpra,“ segir Sævar, og vísar þar til fyrirhugaðrar nýsköpunar í djúpborunarverkefnum. Þá jókst kolefnisbinding við Hellisheiðarvirkjun um meira en helming milli ára og gagnaflutningur um kerfi Ljósleiðarans meira en tvöfaldaðist. Það gerðist einkum með þeirri stækkun kerfanna sem varð við kaup á stofnneti Sýnar 2023 en einnig með fjölgun viðskiptavina.

Margvísleg verðmætasköpun

 Á árinu gerðust Orkuveitan, Orka náttúrunnar og Carbfix aðilar að þróunar- og nýsköpunarverkefni á Grundartanga. Á meðal þess sem felst í verkefninu er nýting glatvarma frá iðnaði þar og fyrsta binding kolefnis beint frá orkusæknum iðnaði hér á landi. „Þarna eigafjölþættir kraftar og þekking Orkuveitunnar að draga að margvíslegan rekstur. Markmiðið er að efla samkeppnishæfni iðnaðar og atvinnusvæðisins með heildstæðri nálgun um sjálfbærari stóriðjurekstur. Þetta eykur orkuöryggi og viðnámsþrótt samhliða samdrætti í losun. Við höfum trú á að sambærileg hringrásarverkefni geti orðið að veruleika annars staðar á landinu. Þannig verði ný fyrirtæki til, störfum fjölgi og verðmætasköpun fyrir samfélagið aukist,“ segir Sævar.

„Ég er afar stoltur af starfsfólki og stjórnendum Orkuveitunnar sem brugðust hratt og af festu við þegar greiðslufall varð hjá okkar stærsta orkukaupanda. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður jókst rekstrarhagnaður Orkuveitunnar um 2,4% milli ára og félagið skilaði góðri afkomu á síðasta ári. Enn er ekki útséð um heildaráhrif málsins, en við leggjum ríka áherslu á að verja fjárhagslegan styrk Orkuveitunnar þannig að félagið geti áfram staðið undir fjárfestingum og mikilvægum verkefnum í þágu samfélagsins,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.

Sjálfbærniskýrsla 2025 og Loftslagsbókhald

Skýrsla stjórnar í ársreikningi Orkuveitunnar 2025 er jafnframt sjálfbærniskýrsla vegna ársins. Hún gefur glöggt yfirlit yfir framfarir og áskoranir í umhverfis-, loftslags, samfélags- og stjórnarháttamálum hjá Orkuveitunni. Þá gefur Orkuveitan út Loftslagsbókhald ársins. Það er í viðhengi á ensku.

Yfirlit stjórnenda

Rekstrarár 2025 2024 2023 2022 2021
Fjárhæðir eru á verðlagi hvers árs í milljónum kr.
Rekstrartekjur 68.444 66.782 61.169 55.644 51.890
Rekstrarkostnaður (28.185) (27.720) (25.469) (21.220) (18.380)
 þ.a. orkukaup og flutningur ( 6.449) ( 7.191) ( 7.264) ( 6.718) ( 5.872)
EBITDA 40.259 39.062 35.701 34.424 33.510
Afskriftir (17.485) (16.830) (15.797) (14.439) (13.257)
Rekstrarhagnaður EBIT 22.774 22.232 19.904 19.984 20.253
Sjóðstreymi
Innleystar vaxtatekjur 1.230 1.066 591 313 256
Greidd vaxtagjöld ( 8.335) ( 8.037) ( 7.040) ( 5.061) ( 4.398)
Handbært fé frá rekstri 31.422 29.725 27.672 26.358 25.582
Veltufé frá rekstri 30.462 29.113 27.465 27.587 23.675
Lausafé 31.12.2025 31.12.2024 31.12.2023 31.12.2022 31.12.2021
Bundnar innstæður og markaðsverðbréf 15.364 11.594 8.670 11.071 14.657
Handbært fé 10.827 16.438 10.342 6.651 10.320
Óádregnar lánalínur 20.053 4.550 14.660 9.100 9.629
Lausafé samtals 46.244 32.582 33.672 26.821 34.606
Raforkuvinnsla (GWst.) 3.247 3.384 3.509 3.494 3.545
Heitavatnsvinnsla (millj. m³) 108 119 112 107 104
Vatnsvinnsla (millj. m³) 28 30 32 29 28
Gagnamagn (Terabæti) 1.268.000 574.000 518.000 443.000 396.000
CO2 bundið í berg 18.800 12.100 12.500 12.300 13.400
H2S bundið í berg 5.107 4.899 5.924 6.021 7.476
Óútskýrður launamunur kynja -0,30% 0,59% -0,10% 0,10% -0,20%

Tengiliður:

Snorri Hafsteinn Þorkelsson

framkvæmdastjóri fjármála

snorri.hafsteinn.thorkelsson@orkuveitan.is