26. október 2026

Orkuveitan: Fjárhagsspá Orkuveitunnar 2027–2031 samþykkt

Loading...

Stjórn Orkuveitunnar (Orkuveitu Reykjavíkur) samþykkti í dag fjárhagsspá samstæðunnar fyrir árið 2027 og langtímaspá fyrir árin 2028–2031. Áætlað er að fjárfesta fyrir 218,7 milljarða króna á tímabilinu í orkuöflun og grunninnviðum. Spáin gerir jafnframt ráð fyrir áframhaldandi vexti tekna og rekstrarframlegðar og traustri fjárhagsstöðu samstæðunnar.

Stjórn Orkuveitunnar (Orkuveitu Reykjavíkur) samþykkti í dag fjárhagsspá samstæðunnar fyrir árið 2027 og langtímaspá fyrir árin 2028–2031. Áætlað er að fjárfesta fyrir 218,7 milljarða króna á tímabilinu í orkuöflun og grunninnviðum. Spáin gerir jafnframt ráð fyrir áframhaldandi vexti tekna og rekstrarframlegðar og traustri fjárhagsstöðu samstæðunnar.

Fjárhagsspáin er samandregin fyrir móðurfélagið og dótturfélögin Veitur, Orku náttúrunnar, Ljósleiðarann og Carbfix. Spár dótturfélaganna hafa áður hlotið samþykki stjórna þeirra. Spáin fer til umfjöllunar hjá Reykjavíkurborg sem hluti af fjárhagsáætlun samstæðu borgarinnar.

Aukin verðmætasköpun og öflug uppbygging til framtíðar

Samkvæmt spánni aukast árlegar tekjur samstæðunnar um 22,2 milljarða króna, eða 28,2%, frá 2027 til 2031. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) eykst á sama tíma um 17,1 milljarð króna, eða 35,8%, en rekstrarkostnaður án afskrifta um 5,1 milljarð króna, eða 16,5%. Afkoma samstæðunnar batnar á tímabilinu og er gert ráð fyrir 16,4 milljarða króna hagnaði árið 2031.

Heildarfjárfestingar á árunum 2027–2031 eru áætlaðar 218,7 milljarðar króna. Fjárfestingarnar beinast meðal annars að aukinni orkuöflun, styrkingu og endurnýjun veitukerfa, auknu afhendingaröryggi heits vatns, orkuskiptum, stafrænni þróun fjarskiptakerfa, rannsóknum og nýsköpun. Í spánni er ekki gert ráð fyrir breytingu á eignarhaldi Ljósleiðarans eða Carbfix, sem þó er til skoðunar.

Samkvæmt spánni eykst árlegt veltufé frá rekstri úr 34,5 milljörðum króna árið 2027 í 42,5 milljarða króna árið 2031, eða um 23,2%. Aukið veltufé frá rekstri styrkir getu samstæðunnar til að standa undir fjárfestingum og afborgunum lána.

Eiginfjárhlutfall er 50,1% árið 2027 samkvæmt spánni og verður 47,8% í lok spátímabilsins. Áætlaðar arðgreiðslur á tímabilinu nema 35,1 milljarði króna og er gert ráð fyrir að skilyrði til arðgreiðslna verði uppfyllt.

Fjárfest til framtíðar

„Með fjárfestingum næstu ára búum við Orkuveituna undir áframhaldandi vöxt samfélagsins og aukna þörf fyrir örugga og sjálfbæra grunnþjónustu. Jafnframt eflum við viðnám fyrirtækjanna gagnvart loftslagsvánni og annarri hættu. Spáin endurspeglar metnað okkar til að auka orkuöflun, efla veitukerfin og þróa nýjar lausnir; nýta djúpa jarðhitann og fara nýjar leiðir við þróun orkukosta. Um leið gætum við hagsýni í rekstri til að tryggja trausta fjárhagsstöðu. Umfangsmiklar fjárfestingar næstu ára styrkja afhendingaröryggi þjónustu okkar og samkeppnishæfni samfélagsins til framtíðar,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.

Fjárhagsspáin tekur ekki tillit til hugsanlegra áhrifa frekari opinberrar gjaldtöku af orkunotkun og orkuvinnslu.

Gert er ráð fyrir innlendri og erlendri lántöku til fjármögnunar fjárfestinga. Fjármögnunin verður áfram að mestu leyti innan græns fjármögnunarramma Orkuveitunnar. Erlendri lántöku er jafnframt ætlað að stuðla að því að jafna sjóðflæði í erlendum myntum yfir spátímabilið.

Tengiliður:

Snorri Hafsteinn Þorkelsson

framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar

snorri.hafsteinn.thorkelsson@orkuveitan.is